Monday, April 10, 2006

Southampton. UK

Jæja þá er maður komin til Brittaníu. Ég kom seint á Laugardagskvöldið til Southampton. Thað var e-t töf á flugvellinum, þannig að ég rétt náði síðustu lestinni til southamton. Svo var ég skoða mig um í gær. Fór góðan bryggjurúnt.Enda mikið af skútum og bátum hérna. þannig að mér leiddist alls ekki.
Ég fór svo í morgun í tungumálaprófið og náði því með glans. Það tók þónokkurn tíma og spurði mikið um skipa og véladót. þetta var eiginlega meira próf í vélfræði og rafmagnsfræði. Ég náði að klóra mig í gegnum þetta. Svo þarf ég að bíða eftir að fá útgefið þetta skírteini um að vélstjóraréttindin séu viðurkennd. Ég er að vonast til að fá þetta útgefið í dag eða á morgun. Þannig að ég geti pantað flug til spánar sem fyrst. Enda ekkert nema ljótar stelpur hérna og maturinn ekkert sértakur ;) Annars er þetta skemmtileg borg mjög hrein og fín og á sér mikla sögu. Hérna var t.d Farþegaskipið Titanic smíðað. og reyndist það mikið happafley eins og allir vita ;)
Svo er ég að reyna að fá sent copy af sveinsbréfinu en það er e-t vessen en ég er að vonast til að fá það svo ég geti sýnt það í atvinnuviðtalinu. En það fer fram á Cartagena um næstu helgi.

Jæja best að fara fá sér smá egg and bacon... svo maður verði feitur og ljótur eins og englendingarnir ;)

Steini

1 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Gaman að sjá kallinn á netinu þú gengur alveg frá þessu.

8:03 AM  

Post a Comment

<< Home

hit counter