Cartagena Spánn
Jæja þá er ég komin til Cartagena. Ég tók rútu í morgun frá alicante. Ferðinn tók um þrjá tíma. Það leit ekki vel út með hotel í gær þegar ég var að reyna panta á netinu, það var allt fullbókað.Mikið af fólki hérna í páskafríi, aðalega spánverjar. En þegar ég kom þá labbaði ég inn á fyrsta hotelið sem ég sá og va eitt herbergi laust. allavegana næstu tvær nætur. En svo er óvíst með framhaldið, en þetta hlýtur að reddast ;)
Ég heyrði aðeins í snekkjumönnum í gær. Þeir þurftu að krækja fyrir e-t lægðarsvæði. Þeir voru við Azoraeyjar Þannig að þeim seinkar aðeins og reikna með að koma 18 april hingað. Þá er bara taka því rólega þangað til. Ég finn mér örruglega e-t að gera. Það er mikið verið að auglýsa köfunarferðir hérna. Þá er farið og skoðaðar e-t fornminnjar ofl. Höfnin er skemmtileg hérna. Nokkuð mikið af skútum. Svo var eitt skemmtiferðarskip að fara. Lengsta lystisnekkja í heimi liggur hérna “Rising Sun” . Hún er 138 metrar löng og virðist í fyrstu vera bara meðalstórt skemmtiferðaskip. En þetta er snekkja í einkaeigu. Maður kemst ekkert nálægt henni því að er allt afgirt. Það er stór slippur hérna við hliðina á bænum en þar mun snekkjan koma á þriðjudaginn. Það er allt afgirt og ég er búin að senda upplýsingar úr passportinu mínu til að fá passa til að komast inn á svæðið til að komast í viðtalið. Hérna eru örruglega um 80-90% af ferðamönnunum spánverjar. Hitt eru svo scandinavar og bretar. Ég heyrði líka talaða íslensku áðan.
Ég spjallaði við einn helvíti hressan spánverja í gær. Þegar ég sagði honum að ég væri frá íslandi þá var hann heldur betur glaður. Hann sagðist nú vera kunnur íslandi og íslendingum. Hann ætti nú íslenska vini. “Ingi and Steinar” spurði svo “ Do you know them ???” og var svo voða hissa þegar ég sagði honum að kannaðist ekki við þá. Allavegana ekki í augnablikinu ;)
Gleðilega páska og hafið þið það sem allra best.
Kveðja Steini.


0 Comments:
Post a Comment
<< Home