Pirates of the Caribbean
Gott kvöld...
Við erum komin núna aftur til Antigua, eftir að hafa farið víða um og haft tvær velheppnaðar útleigur og krús með eigandann. Þetta er búið að vera mikið ævintýri og gaman að koma á nýja staði í karabíska, núna erum við komin aftur í “sveitina” og verður skipið hérna fram í miðjan mars en þá er stefnt á að sigla yfir. Annars er ágætt að vera hérna, ég fer oft að hjóla eftir vinnu með öðrum og við förum oftast upp á sherlings highs en það er smá fjall hérna rétt hjá sem er með útsýni yfir allan staðinn, flottur staður, en maður verður að passa sig á geitunum á leiðinni því þær eru árasagjarnar.
Ég fer í frí 2. mars og er farin að hlakka mikið til, enda hefur ekki verið mikið um frí upp á síðkastið. Dagskráin er þéttskipuð og er einhvernvegin svona.
2.mars flýg frá Antigua til Saint martin í smárellu, og gisti eina nótt þar.
3. mars þá flýg ég til eldfjallaeyjunar Saba í smárellu en á saba er víst minnsti “commercial” flugvöllur í heimi, eyjan er er rétt hjá saint martin.
verð þar í viku í köfunarskóla, tek tvö námskeið í köfun. Þannig að eftir það fæ ég ágætis köfunarréttindi, þetta er einn besti staður í karabíska til að kafa á og má maður víst alveg búast við að sjá risaskjaldbökur og stórra hákarla!
Hér má lesa um Saba
http://en.wikipedia.org/wiki/Saba
Þetta er köfunarskólinn.
http://www.seasaba.com/
10. mars flýg ég til Saint Martin
11. mars flýg ég svo til Miami, og gisti þar eina nótt, um morgunin 12 mars er plannið að keyra frá Miami til Orlando, sem tekur 4 tíma. Þar hitti ég hinn Borgneska/Vopnfirska loðnusjómann Heiðar Arnfinnsson. Við bræðurnir ætlum svo að krúsa um á blæjumustang um Florida, en dagskráin þar er ekki mikið skipulögð, en plannið er að prófa fallhlífarstökk, keyra niður til Key west, South beach, Fort lauderdale. Það er víst svokallað “spring break” í flestum skólum í USA á þessum tíma, þannig að loðnusjómaðurinn verður ekki í vandræðum að heilla amerísku dömurnar, með sjóarasögum og loðnulykt.
24 mars fljúgum við bræðurnir í sitthvora áttina, Heiðar fer Heim en ég flýg til Palma, verð þar í viku áður en ég fer svo aftur um borð 2. april. En þá verður Snekkjan að öllum líkindum komin til Palma. Ég kem heim í næsta fríi sem er í júlí í 6 vikur, enda verð ég örruglega komin með mikla heimþrá þá.
Bestu kveðjur....
Hér fyrir neðan er svo mynd af mér við störf, í einum af hraðbatunum, en þeir eiga það jú til að bila öðru hvorru,
![]() |
| From Feb 2007 |


