Tuesday, April 24, 2007

Sól í Heiði

Við erum ennþá á sólareyjunni Mallorca, hér er algjör bongó blíða, ég var í fríi í gær,
við og pési leigðum okkur mótorhjól og þrusuðum um eyjuna. við förum fljótlega til suður Frakklands, líklega um næstu helgi, svo verður þetta svipaður rúntur og í fyrra. Það er enþá óljóst með útleigur, en vonandi verða þær nokkrar í sumar, ríkt fólk er ekki mikið fyrir að skipuleggja fríið sitt með miklum fyrirvara. þannig að þetta er óljóst ennþá.

Það er búið að vera svolítil skipti á áhöfn undanfarið, enda sumir að hætta sem eru búnir að vera hérna í 3-4 ár og komin tími til að breyta til. þannig að framundan eru nokkur hressileg kveðjupartý. úfff

Ég fer sex vikna frí í lok júní, en þá mun ég heimækja fósturjörðinna. (ef veður leyfir).

annars er mikið að gera í véladeildinni, við erum alltaf að betrum bæta hjá okkur. Erum t.d núna að láta mála allt hátt og lágt. svo margt sem má bæta, skipið er að verða 15 ára gamalt.

Biða heilsa...



Ég var að fá senda þessa "Bláu" mynd. En þarna er ég mjög djúpt sokinn og nánast komin á botninn
ásamt Ítalska leiðbeinandanum á karabísku eyjunni Saba.

2 Comments:

Blogger Goddezz said...

Sæll frændi!
Gaman að sjá hvað er gaman hjá þér.
Ég fylgist með þér héðan í frá, sá slóðina þína í kommenti hjá Sonju frænku :)
Kveðja,
Dúdda.

4:36 AM  
Anonymous Anonymous said...

helú, lekkert hjá þér Steini minn, rakst hér inn og svona á að lifa lífinu...göðveikt. Ekki alveg laus við smá öfund en gaman að fylgjast aðeins með þér.
kveðja,
Ásdís Halla

5:30 PM  

Post a Comment

<< Home

hit counter