Franskar
Góða kvöldið.
Erum að sigla til Suður Frakklands núna og verðum þar í fyrramálið. Ég náði loksins að leigja BMW mótorhjól í einn dag. það hefur alltaf verið bókað þá daga sem ég er í fríi, Við fórum tveir félagar í svaka ferð, yfir fjöll og firnyndi. komum við í fjallaþorpum eins og t.d Deija og Soller sem er ansi flott . Mallorca er sífellt að koma mér á óvart, óspillt og fjölbreytt landslag.
En nú er það Frakkland, og þá er bara að fara að leita of BMW mótorhjólaleigu þar
Hérna erum við félagarnir Chris, nettir á kæjanum eftir ferðina miklu. Hjólin sem við leigðum eru af gerðinni BMW F650GS og má sjá upplysingar um þau með því að smella hér
Takk fyrir kveðjunar.
Guðsteinn



1 Comments:
Já gaman að sjá hvað þú skemmtir þér í frítímanum.
Erum á fullu að skipuleggja USA-ferðina okkar sem hefst 4.júní.
19 stiga hita sýndi mælirinn mest hjá okkur í dag og allur gróður að koma til.
P.S þeir spá norðankulda seinna í vikunni.
Post a Comment
<< Home