Tuesday, June 26, 2007

Sumarfrí

jæja þá er komið að því að ég komi heim í frí,
erum núna á ankerri í Sardeníu, ég flýg á eftir með einkaþotu til london og svo þaðan í sardínudós með Hundleiðum til íslands.
undanfarið höfum við verið í suður frakklandi og hérna í kringum Corsicu og sardiniu.
Hitastigið heimar er um 12 gráður núna, þannig að ég þarf að klæða mig vel. reikna með því að fara fyrst á æskuslóðirnar í borgarnesi.

Ef einhver vill leika þá er bara að hringja.

jæja best að klára að pakka,

Kv
Steini

Sunday, June 17, 2007

17 Júní

Ísland er land þitt

Ísland er land þitt, og ávallt þú geymir
Ísland í huga þér, hvar sem þú ferð.
Ísland er landið sem ungan þig dreymir,
Ísland í vonanna birtu þú sérð,
Ísland í sumarsins algræna skrúði,
Ísland með blikandi norðljósa traf.
Ísland að feðranna afrekum hlúði,
Ísland er foldin, sem lífið þér gaf.

Íslensk er þjóðin sem arfinn þinn geymir
Íslensk er tunga þín skír eins og gull.
Íslensk er sú lind,sem um æðar þér streymir.
Íslensk er vonin, af bjartsýni full.
Íslensk er vornóttin, albjört sem dagur,
Íslensk er lundin með karlmennskuþor.
Íslensk er vísan, hinn íslenski bragur.
Íslensk er trúin á frelsisins vor.

Ísland er land þitt, því aldrei skal gleyma
Íslandi helgar þú krafta og starf
Íslenska þjóð, þér er ætlað að geyma
íslenska tungu, hinn dýrasta arf.
Ísland sé blessað um aldanna raðir,
íslenska moldin, er lífið þér gaf.
Ísland sé falið þér, eilífi faðir.
Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf.

Thursday, June 14, 2007

Halló

Gott kvöld.

Við erum núna á Mallorca, nánar tiltekið á ankeri rétt fyrir utan Soller sem er bær á norðvesturhluta eyjarinar. hér eru fjöll og fallegt um að litast. Við siglum fljótlega aftur til Frakklands og verðum þar í fyrramálið. Undafarna daga höfum við verið í höfn í Palma, það er búið að vera ágætt, mikið líf í Palma, og það er ansi heitt á daginn.

nú eru innan við tvær vikur í heimför. Verðum líklega hérna í suður Frakklandi þangað til, gæti verið að við verðum lögð af stað til Grikklands, en ef svo fer þá fer af á sikiley eða möltu. En vonandi get ég farið af í Frakklandi og flogið frá Nice.

það hefur verið átakanlegt að fylgjast með Paris Hilton í sjónvarpinu. aumingja stelpan. sorglegt að sjá hvað þessi heimur er grimmur ;)

hit counter