Tuesday, June 26, 2007

Sumarfrí

jæja þá er komið að því að ég komi heim í frí,
erum núna á ankerri í Sardeníu, ég flýg á eftir með einkaþotu til london og svo þaðan í sardínudós með Hundleiðum til íslands.
undanfarið höfum við verið í suður frakklandi og hérna í kringum Corsicu og sardiniu.
Hitastigið heimar er um 12 gráður núna, þannig að ég þarf að klæða mig vel. reikna með því að fara fyrst á æskuslóðirnar í borgarnesi.

Ef einhver vill leika þá er bara að hringja.

jæja best að klára að pakka,

Kv
Steini

Sunday, June 17, 2007

17 Júní

Ísland er land þitt

Ísland er land þitt, og ávallt þú geymir
Ísland í huga þér, hvar sem þú ferð.
Ísland er landið sem ungan þig dreymir,
Ísland í vonanna birtu þú sérð,
Ísland í sumarsins algræna skrúði,
Ísland með blikandi norðljósa traf.
Ísland að feðranna afrekum hlúði,
Ísland er foldin, sem lífið þér gaf.

Íslensk er þjóðin sem arfinn þinn geymir
Íslensk er tunga þín skír eins og gull.
Íslensk er sú lind,sem um æðar þér streymir.
Íslensk er vonin, af bjartsýni full.
Íslensk er vornóttin, albjört sem dagur,
Íslensk er lundin með karlmennskuþor.
Íslensk er vísan, hinn íslenski bragur.
Íslensk er trúin á frelsisins vor.

Ísland er land þitt, því aldrei skal gleyma
Íslandi helgar þú krafta og starf
Íslenska þjóð, þér er ætlað að geyma
íslenska tungu, hinn dýrasta arf.
Ísland sé blessað um aldanna raðir,
íslenska moldin, er lífið þér gaf.
Ísland sé falið þér, eilífi faðir.
Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf.

Thursday, June 14, 2007

Halló

Gott kvöld.

Við erum núna á Mallorca, nánar tiltekið á ankeri rétt fyrir utan Soller sem er bær á norðvesturhluta eyjarinar. hér eru fjöll og fallegt um að litast. Við siglum fljótlega aftur til Frakklands og verðum þar í fyrramálið. Undafarna daga höfum við verið í höfn í Palma, það er búið að vera ágætt, mikið líf í Palma, og það er ansi heitt á daginn.

nú eru innan við tvær vikur í heimför. Verðum líklega hérna í suður Frakklandi þangað til, gæti verið að við verðum lögð af stað til Grikklands, en ef svo fer þá fer af á sikiley eða möltu. En vonandi get ég farið af í Frakklandi og flogið frá Nice.

það hefur verið átakanlegt að fylgjast með Paris Hilton í sjónvarpinu. aumingja stelpan. sorglegt að sjá hvað þessi heimur er grimmur ;)

Sunday, May 27, 2007

Arabarabrabarei

Arabíski prinsinn er farin heim í eyðimörkina ásamt félugum sínum.
Arabarnir tóku heilan sendibíl af farangri með sér í þessa 4 daga skemmtisiglingu. En samt var þetta engin sigling. Við vorum í höfn í Cannes allan tíman. Á meðal farangurs var 20 lampar, Risasjónvarp (þurfti að nota krana til að koma því um borð) Tveir stórir prentarar
(sem að myndu sæma meðalstóru fyrirtæki), hundur, og 5 kameldýr sem að sómuðu sér vel um borð.
Ég stalst aðeins í land í gærkvöldi. mikið líf í Cannes.

Erum í Antibes bíðum eftir að veður lægi, en þá siglum við til Palma.

Arios...

Wednesday, May 23, 2007

Partý

Góða kvöldið.

Við erum ennþá við bryggju í Franska bænum Antibes, Í gærkvöldi var svaka partý á snekkjunni við hliðina á okkur, partýið var á vegum kvikmyndarinar Ocean 13 sem er væntanleg í bíó. Þarna voru á ferðinni stórstjörnur á borð við Badda Pitt, Gogga Klúnn.
Við fylgdumst með á fordekkinu hjá okkur, en náðum nú ekki að berja stórstjörnurnar augum, því þær máttu víst ekki fara út á dekk vegna þess að eiga hættu á því að einhver tækji mynd af þeim, því eitthvert slúðurblaðið var búið að kaupa réttin á því að taka myndir í þessu partýi. Það fóru nokkrir úr áhöfnini í partýið eftir að stjörnunar voru farna heim.

Við fengum að vita í dag að það verður útleiga á morgun. Það eru víst Arabar að koma á morgun, pikkum þá upp í Cannes. E-t Arabískur prins ásamt eiginkonunum sínum. Spurning hvort að hann komi með mörg Kameldýr með sér...

Frétti að það væri snjókoma heima. Spurning hvort ég þurfi að fresta heimkomunni!


Lifið heil.

Friday, May 18, 2007

Cannes Film Festival

Góðan daginn.

Í gærkvöld fór ég í betri fötin og brá til Cannes ásamt nokkrum úr áhöfninni. Það var mikið um að vera þar, enda kvikmyndahátíðinn um helgina. það var mikið um limmósíur og rauða dregla , gaman að fylgjast með mannlífinu, en okkur tókst nú ekki að koma auga á neinn frægan í þetta sinn. en samt sem áður mjög gaman að koma þarna á þessa hátíð.

annars er bara allt ágætt að frétta. verðum hérna í c.a viku í viðbót, ég er að vonast til að geta kíkt til Monaco um næstu helgi á formúluna. eftir það verðum við í Palma og förum svo til Grikklands.

Mig er farið að hlakka til að koma heim en það eru um 5 vikur í það. ekki laust við að maður sakni öðru hvorru Íslands pínu.



Mér skilst að þetta bíði mín heima.

Bið heilsa Steini

Saturday, May 12, 2007

The French Riveria

Gott að vera aftur komin á ríveríuna. Er búin að kíkja til Cannes, Nice og Monaco. Sumarið er komið hér...
annars hef ég ekkert að segja í bili.

Monday, April 30, 2007

Franskar


Góða kvöldið.

Erum að sigla til Suður Frakklands núna og verðum þar í fyrramálið. Ég náði loksins að leigja BMW mótorhjól í einn dag. það hefur alltaf verið bókað þá daga sem ég er í fríi, Við fórum tveir félagar í svaka ferð, yfir fjöll og firnyndi. komum við í fjallaþorpum eins og t.d Deija og Soller sem er ansi flott . Mallorca er sífellt að koma mér á óvart, óspillt og fjölbreytt landslag.
En nú er það Frakkland, og þá er bara að fara að leita of BMW mótorhjólaleigu þar

Hérna erum við félagarnir Chris, nettir á kæjanum eftir ferðina miklu. Hjólin sem við leigðum eru af gerðinni BMW F650GS og má sjá upplysingar um þau með því að smella hér

Takk fyrir kveðjunar.

Guðsteinn
Posted by Picasa

Tuesday, April 24, 2007

Sól í Heiði

Við erum ennþá á sólareyjunni Mallorca, hér er algjör bongó blíða, ég var í fríi í gær,
við og pési leigðum okkur mótorhjól og þrusuðum um eyjuna. við förum fljótlega til suður Frakklands, líklega um næstu helgi, svo verður þetta svipaður rúntur og í fyrra. Það er enþá óljóst með útleigur, en vonandi verða þær nokkrar í sumar, ríkt fólk er ekki mikið fyrir að skipuleggja fríið sitt með miklum fyrirvara. þannig að þetta er óljóst ennþá.

Það er búið að vera svolítil skipti á áhöfn undanfarið, enda sumir að hætta sem eru búnir að vera hérna í 3-4 ár og komin tími til að breyta til. þannig að framundan eru nokkur hressileg kveðjupartý. úfff

Ég fer sex vikna frí í lok júní, en þá mun ég heimækja fósturjörðinna. (ef veður leyfir).

annars er mikið að gera í véladeildinni, við erum alltaf að betrum bæta hjá okkur. Erum t.d núna að láta mála allt hátt og lágt. svo margt sem má bæta, skipið er að verða 15 ára gamalt.

Biða heilsa...



Ég var að fá senda þessa "Bláu" mynd. En þarna er ég mjög djúpt sokinn og nánast komin á botninn
ásamt Ítalska leiðbeinandanum á karabísku eyjunni Saba.

Saturday, April 14, 2007

Buenas noches chicas!!!!!

Hér er lítið að frétta. er byrjaður að vinna, nóg að gera, við erum ennþá í Palma, og siglum svo til Frakklands líklega í lok Apríl. Veðrið búið að vera ömurlegt. og alls ekkert Majorca veður hér, rignir stöðugt. en það á nú að stytta upp eftir helgina.

Páskarnir voru fínir . við fórum nokkur og ferðuðumst um eyjunna, skoðuðum drekahellana, svo leigði ég mótorhjól einn dag, og rúntaði um.

Landsleikurinn var annsi skemmtilegur, sértaklega fyrri hlutinn, það ringdi alveg rosalega, þannig að það var ekki þurr blettur á manni, við hittum svo íslenska stuðningsmenn á barnum á vellinum (þar halda íslendingar sig oftast) og fórum með þeim á smá djamm í Palma.

fleira er ekki í fréttum að sinni veriði sæl.

hit counter