Í slipp
Góðan daginn.
Nú hef ég hafið störf sem vélstjóri á lystisnekkju. Það er annsi gott að vera byrjaður að vinna aftur eftir að hafa lifað “Lýður Oddson lifestyle” undanfarnar vikur (en samt var yndislegt að vakna kl 7 til að fara svo að sofa aftur)
Ég byrjaði í gær, en vann bara til hádegis. Svo fórum við Pétur að skoða virki upp á fjalli skammt frá, sem er úr stríðinu. Það gekk svolítið erfiðlega að finna leiðina en það gekk fyrir rest. En svo keyrðum við upp á Fjall. Vegurinn var svakalegur. Alveg þverhníft niður. Það voru nokkur skilti þar sem stóð að það væri stranglega bannað að fara á þetta hersvæði, sem gerði ferðina en meira spennandi. Virkið var mjög áhugavert og þarna voru risa-byssur. (hlaupinn voru c.a 7 metra löng) og voru notaðar til að dryta á skip sem voru að koma inn í miðjarðarhafið. Svo fórum við inní virkið og þar voru gufuvélar ofl. Til að knýja byssurnar. Allt frekar heillegt.
Snekkjan er komin inn í skúr!. Hún var færð í slippnum inn í stórra skemmu vegna málningarvinnu.
Nú er maður að koma sér inn í starfið. Það er mikið verið að vinna í skipinu og margir spanjóla-iðnaðarmenn. Mér lýst mjög vel á þetta og held að ég eigi eftir að líka þetta starf. Það er margt öðruvísi en maður hefur vanist. Mikil pappírsvinna og allt mjög skipulagt, sem er gott. Crewið virðist vera mjög fínt. Maður í því að læra nöfnin og að kynnast þeim. Þau eru flest bresk. Margir eru í frí þannig að það vantar slatta. Pétur og þórun voru að fara í frí og verða c.a 3 vikur. Maturinn er alveg hrikalega góður. Mikið af Trópískum ávöxtum. Svo drekkur liðið hvítt, rautt og bjór með matnum eins og hvern annan djús. Og allt náttúrulega frítt.
Ég er búin fá mér Al-spænsk símanúmer og er hægt að sjá það bakborðsmegin á síðunni. (um að gera að hringja í mig á meðan ég tala ennþá íslensku).
Þangað til næst.....Arios


2 Comments:
Þú ert bara eins og blóm í eggi drengur! Gott að lífið leikur við þig. Lífið er nenfilega, rétt eins og Morthens bendir á, alveg ágætt:)
Hilsen, Gunni.
Guð blessi þig Steini minn!
Post a Comment
<< Home