Friday, May 05, 2006

Palma a sunnudagskvold

Það er lítið að frétta nema að brottför frestast aðeins. En það er stefnt á að fara á sunnudagskvöld. Ástæðan er sú að það fannst sprunga í afgaskerfinu, þannig að það það er búið að taka allar krómhlífarnar af og stendur til að sjóða. Vélarúmið lýtur ekki vel út núna, allt í sótti.
Við fengum að vita í dag að það er búið að óska eftir að fá snekkjuna leigða yfir kvikmyndahátíðina í khan. En thad er í kringum 20 maí. Það ku vera e-t rússnenskur auðkýfingur.
Skipstjórinn var að koma úr fríi og virðist hann vera mjög fínn. Svo er ég núna búin að læra öll nöfnin og maður farin að kynnast öllum betur. Þetta er virðist allt sómafólk og margir víðförlir. Sumir eru búnir að vera um borð lengi 6-7 ár.
Maturinn er alltaf jafn frábær. Eina sem er ekkert rosalega gott er fiskurinn. Maður er vanur svo góðum fiski úr norður-atlandshafinu. Kokkurinn er dönsk stelpa, og maður stundum ad reyna ad spreyta sig á dönskunni (hvad skal vi spise i aften, tusund tak ) ;)
Veðrið er alls ekki gott. Það hefur verið að mestu skýjað og hitin ekki nema 18 stig. brrrrrr......

Við ætlum að kíkja nokkur á pöpp á eftir í bæ (La Manga) sem er hérna rétt hjá... en samt ekkert rall ;) Því ég á vakt á morgun. Svo sunnudagin held eg til hafs, og tekst a vid sjomennskuna, en hun er vist ekkert grin


Árshátíð gáfumannafélagsins verður haldin um helgina á Akureyri. Mér þykir leit að komast ekki á hana. En það verður eflaust gaman að skoða dagbók lögreglunar á mánudaginn.


Þakka fyrir kveðjuna vinur....Logi List ;)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home

hit counter