Thursday, October 19, 2006

Casino

Ég segi nú bara allt fínt hérna úr miðjarðarhafinu. Við erum núna á siglingu frá möltu til corfu. Við vorum fjóra daga á möltu. Ágætispleis... hossaðis um í eldgamalli bedford rútu um eyjuna, hefði þurft nýrnarbelti. Svo var spílavíti rétt hjá sem Leander var. Við fórum nokkrir félagar og vorum agalega fínnir kallar. spiluðum black jack og rúllettu með ginblöndu í annari og spilapeninga í hinni. Mönnum gekk misvel en ég náði að koma út á sléttu. Það gaman að fylgjast með fólki þarna sem eyddi nokkrum hundraðþúsundköllum á nokkrum mínutum. Annars er gengur lífið sitt vanagang. Við tökum einhvern rúnt um corfu og verðum svo í palma um mánaðarmótinn.

Hvað segið þið annars er farið að kólna heima???

hit counter