Casino
Ég segi nú bara allt fínt hérna úr miðjarðarhafinu. Við erum núna á siglingu frá möltu til corfu. Við vorum fjóra daga á möltu. Ágætispleis... hossaðis um í eldgamalli bedford rútu um eyjuna, hefði þurft nýrnarbelti. Svo var spílavíti rétt hjá sem Leander var. Við fórum nokkrir félagar og vorum agalega fínnir kallar. spiluðum black jack og rúllettu með ginblöndu í annari og spilapeninga í hinni. Mönnum gekk misvel en ég náði að koma út á sléttu. Það gaman að fylgjast með fólki þarna sem eyddi nokkrum hundraðþúsundköllum á nokkrum mínutum. Annars er gengur lífið sitt vanagang. Við tökum einhvern rúnt um corfu og verðum svo í palma um mánaðarmótinn.
Hvað segið þið annars er farið að kólna heima???


4 Comments:
"Costa Del Sol...skítapleis"
Heill og sæll meistari. Gaman að heyra frá þér. Hlakka til þegar þú kemur heim með kistil eins og Komákur afi að segja mér sögur frá útlöndum.
Guð blessi þig Steini minn.
Gunni.
Mikið var að það var bloggað.
Jú ég er ekki frá því að það hafi kólnað eitthvað hérna hjá okkur.
Sá tælenski lætur lítið í sér heyra.
kv, mamma
Alltaf gaman að fá nýjar fréttir af kappanum, var orðinn hræddur um að það væri búið að loka þig inni þarna erlendis.
Jæja þá er bara alveg að koma að því að þú kemur á klakann í smá heimsókn.
Heima er nú alltaf best.
Hvernig væri nú að virkja þessa bloggsíðu ?
kv,allir heima
Post a Comment
<< Home