Thursday, November 30, 2006

Eru jólasveinar í karabíska ?

Halló hér...

Mikið er nú gott að vera komin aftur í sólina á majorcu.... eftir að hafa verið veðurbarin á landinu gráa í nokkra daga... Palma í fín núna, ekki eins busy eins og í sumar. Búin að spóka mig um og fara tapas með crewinu.

Framunda er að sigla 6 des til Gibraltar, tökum olíu þar og svo verður lagt af stað yfir atlandshafið. En það er um 10 daga sigling, við stoppum kannski við á Kanarí, reiknum með því að vera í Antiqa um 20 asta, rétt fyrir Jólahátíðinar. Jólinn verða eflaust eithvað frábrugðin hinum 27 sem ég hef upplifað. En ég held að það verði rauð jól þetta árið.

Þóttú farir um framandi höf

Í fjarlægjum deildum Jarðar

Og sjóinir hyggjast svelgja þér fley

Og séu þér lífsvonir sparðar

Þekkið þetta þetta?

Thursday, November 09, 2006

Ég fer í fríið....

jæja á morgun kem ég heim í smá frí verð komin annað kvöld (föst).
Annars er bara allt í fína. Við erum núna í palma í viðgerðarstoppi og búið að vera nó að gera. Ég verð í fríi 10 daga. Aðeins að kæla mig niður áður en við förum í karabíska hafið. mér skilst að það sé alveg hægt á Íslandi núna.

Svo vill einhver leika?

hit counter