Eru jólasveinar í karabíska ?
Halló hér...
Mikið er nú gott að vera komin aftur í sólina á majorcu.... eftir að hafa verið veðurbarin á landinu gráa í nokkra daga... Palma í fín núna, ekki eins busy eins og í sumar. Búin að spóka mig um og fara tapas með crewinu.
Framunda er að sigla 6 des til Gibraltar, tökum olíu þar og svo verður lagt af stað yfir atlandshafið. En það er um 10 daga sigling, við stoppum kannski við á Kanarí, reiknum með því að vera í Antiqa um 20 asta, rétt fyrir Jólahátíðinar. Jólinn verða eflaust eithvað frábrugðin hinum 27 sem ég hef upplifað. En ég held að það verði rauð jól þetta árið.
Þóttú farir um framandi höf
Í fjarlægjum deildum Jarðar
Og sjóinir hyggjast svelgja þér fley
Og séu þér lífsvonir sparðar
Þekkið þetta þetta?


4 Comments:
Sæll Sveinki
Ég þakka fyrir síðast, þó að það hafi verið í styttra lagi.
Ég lagðist í smávegis rannsóknarvinnu varðandi jólasveinana og komst að þeirri niðurstöðu að í karabíska eru ekki jólasveinar heldur jólasveinkur. Jólasveinkur þessar eru, sökum óhóflegs hita, ekki skeggjaðar, með bumbu og í rauðum kuldabúningi. Heldur eru þær sólbrúnar latínó gyðjur í rauðu t-strengs bikíni. Þær eiga það samt sameiginlegt með sveinka sem við þekkjum að vera æstar í að fá unga menn á hné sér og gefa þeim allt sem þá dreymir um.
Þetta er allt haft eftir mjög áreiðanlegum heimildum, Steini minn, þannig að ég held að þú eigir eftir að njóta jólanna vel í ár.
Kveðja úr frostinu
Árni Viggó
Jjáááá það er nú ekki slæmt að heyra. .. þakka þér fyrir þetta Árni. Ég læt vita hvernig fer með sveinku...
Sæll Pungur. Það þætti mér nú nýlunda ef þú færi nú að trúa á jólasveinkur þar sem þú hefur aldrei trúað á jólasveina "eða þú sagðir mér a.m.k. að svoleiðis væri ekki til um 1984" en hvað um það ég skal botna þetta hjá þér: Á hinstu stund’ ertu halaður upp
Hinir þá týna hver sér.
Því þótt þú gleymir Guði,
þá gleymir Guð ekki þér.
Eftir vin okkar megas. Það er gott að þú hefur góða menn meðferðis. Kær kveðja Logi list.
Góður Logi...
Þakka þér fyrir síðast... Við vorum nú heppnir að verða ekki úti, Þegar við gengum á milli öldurhúsa í stórhríðinni.
"Þeirr ólmuðust eins og naut
Og þeirr byggðu miklubraut
og blokkirnar þær skuttust upp til skýja
ogmenn halda áfram að príla
og kaup búslóðir og bíla...."
Post a Comment
<< Home