Enntha i palma
Jæja vegna fjölda áskorana hérna á kommentkerfinu þá hef ég ákveðið að láta undan og skrifa smá pistil. Það er annars lítið að frétta hér úr hverslagleikanum í Palma.
Eigandinn er um borð en ég hef nú ekki hitt hann ennþá. Allir eru komnir í einkennisbúning, og ég er í nýstrauaðri hvítri skyrtu, með tvær strípur á sitthvorri öxlinni. Það er margt skrýtið í þessum bransa sem maður er að vinna í. T.d er eigandinn með tvo kokka og fullt af þjónustuliði í vinnu hérna um borð en fer samt oftast út að borða ;)
Ég er að komast meira inn í starfið og líkar mér það ennþá mjög vel. Hef soldið verið að vinna á svæðinu sem að gestirnir eru og maður er ennþá að dást af íburðinum og flottheitunum þar. Manni lýður stundum eins og maður sé staddur í James bond mynd.
Ég er með vespu á leigu og hef verið að rúnta um og verið að skoða mig um hérna í Palma og mér þykir þetta skemmtilegur staður. Það er ekkert rosalega mikið um túrista ennþá.
Á sunnudagin fór ég ásamt fleirrum að skoða þriggja mastra seglskip hérna í höfninni sem að tvö hérna voru einu sinni að vinna á. Það var mjög áhugavert. Segl og reiði eru eins og voru í gamla daga, og engar rafmagns eða vokvavindur. Það eru um 70 í áhöfn og flest unglingar sem er verið er að reyna að gera að mönnum með því að kenna þeim að sigla.
Það verður gaman að hitta Heiðar og bjóða honum upp á spænskt Tónic. Það getur verið að maður skreppi á hjólinu til palma nova á morgun, En það er bara hérna rétt hjá.Það er alltaf sama blíðan og maður hefur ekki orðið var við eitt ský síðan við komum til palma.
Það lýtur út fyrir að ég fari í frí í lok júlí. Þar sem ég vinn þrjá mánuði og einn í frí. Þá er aldrei að vita nema maður hætti sér norður á Íseyjunna í smá tíma rétt áður en vetrarhörkunar skella á ;)
Ég ber bestu kveðju til allra .
p.s
Hvernig er það eiginlega…. Er hann Gunni vinur minn alveg hættur að kommenta ???


5 Comments:
Verðurðu ekki að fá þér stípur í hárið sem passa við skipperabúininginn?
Þannig að það verður farið í Landmannalaugarnar í ágúst, með þúsundkallana!
Jæja ertu búinn að hitta tvo föla íslendinga á förnum vegi(Heiðar og Atla) Passaðu litla kútinn.
flott... skippuleggjum ferd i Laugarnar i Agust. Thad verda engnir helv. thussarar i ar... Nu verdur thad thykkur vondull af kolsvortum Sterlingpundum...
Er volinn ekki kl'ar maggi ?
Eg hitti tvo FOLA 'adan... their voru helviti spraekir, aettla slaeppast e-t med theim a laugardaginn.
mer synist lilli vera nokkud thaegur. thambandi gos i solinni ;)
hvernig er það ertu alveg hættur að blogga????
Post a Comment
<< Home