Palma Mallorca
Við lögðum á stað frá Cartagena kl fimm í gær og var stefnan tekin norðaustur og silgt var á fullu afli (18 hnútum)... og komum til Palma kl 8 í morgun. Siglinginn gekk vel. Skipið fer vel í sjó og hreyfist varla. Skipið er útbúið jafnvægisbúnaði “stabilizer”, það eru vökvaknúnir uggar neðanlega á skrokk skipsins, sem að snúast gegn við hreyfingu skipsins og sjá um að halda því stöðugu. Ekki mjög flókin búnaður en gerir rosalegt gagn.
Hér í palma er nátturlega algjört majorca veður, (enda er þetta á mallorca, haha). Ég lagði mig á tekk-klædda fordekkinu í hádegishléinu, og fékk smá roða fyrir vikið.
Það er alveg rosalega mikið af skútum og snekkjum hérna og nokkrar í sama stærðarflokki og “leander”. Ég tók smá bryggjurölt eftir vinnu og það var margt skoða. Ég á eftir að skoða mig betur um enda verður nægur tími til þess, við verðum að a.m.k tvær vikur hérna, og komum svo líklega aftur í lok sessonsins.
Fleira var það ekki að sinni
Bið að heilsa


5 Comments:
Til að kanna hvort þetta er allt satt hjá þér vinur þá hef ég ákveðið að kíkja til þín til Mallorca víst þú ert ekki enn búin að sýna manni myndir.
Ekki verður tekin ómerkilegri maður en sjálfur Larsen með í för.
En hann verður aðalega með til þess að trylla dömurnar fyrir okkur.
Já við leggjum í loftið miðvikudag 17 maí.
Skila kveðju frá þér á Leifsbar.
oh er ekki ömurlegt þarna í þessari stækju....við söknuðum þín á Akureyrinni síðustu helgi þar var einmitt algjört mallorca veður...leiðinlegt að við komust ekki í dagbók lögreglunnar það var sennilega bara af því að þig vantaði :)
Heidar:
Eg var ad spa i ad hengja upp plaggot med mynd af Larssen herna a Mallorca til thess ad vara stulkurnar vid honum ;)
Maggi:
nei.... madur passar bara ad drekka kaelivokva ef manni hitnar... thad var djofulegt ad missa af thessu, en thid komumst allavegana i frettirnar sa eg ;)
http://www.visir.is/apps/pbcs.dll/article?AID=/20060512/FRETTIR01/105120035/1091
Á ekkert að blogga vinur?
Svo væri nú gaman að sjá myndir úr þessari fínu myndavél sem þú varst að kaupa?
Sjáumst annars í baðslopp, sandölum og með G&T í annari á miðvikud.
Var þetta nýja leganda tilfelli eitthvað sem Heiðar kom með frá Tælandi? ;)
Post a Comment
<< Home