Tuesday, June 27, 2006

ciao

Goda kvoldid....

Undanfarid tha hofum vid verid ad runta i kringum italiu. vid byrjudum i Napoli. og erum buin ad vera fara til eyjunar Capri sem er vigalega eyja med haum fjollum. svo forum vid aftur til napoli til ad na i einn gest sem var ad koma med einka boeing thottunni sinni, en hann ku eiga ansi marga peninga. reyndar med theim rikar i heiminum. Napoli er nu ekkert spes. svakalega stor og busy borg. rosalega skitugar goturnar. og mikid um mafiubofa eins og Gunnar bendir rettilega a ;) en astaedan fyrir thvi ad vid vorum tharna er ad thad er stutt i flugvoll. Eg skodadi mig soldid um thar, og gaman ad fylgjast med umferdini, sem er vaegast gedveik, allir liggjandi a flautunni og oskrandi ut um gluggan eins og gedsjuklingar. Thad sem var gott vid napoli voru pizzunar their kunna sko gera pizzur thessir italir (og raudvin kannski lika).
I dag lagum vid, vid ankeri nalaegt einum bae sem er nanast byggdur i fjallshlid. eg skrapp i land asamt foruneyti og vid skodudum okkur um, thetta var alveg magnadir stadur. og svakalega flott landslagid i kring. Thetta er snobbstadur og allt randyrt. for i klippingu sem tok tiu minutur og borgadi 40 evrur ut i hond!
Tad er buid ad vera ansi heitt i vedri thessa dagana og svakalega rakt. og madur svitnar eins og svin thegar madur er ad gera eitthvad uti og thegar madur kemur inn i snekkjuna tha er thad eins og ad labba inn i isskap, loftkaelingin er mjog oflug hja okkur. thad er voda gott ad skella ser i sjoinn a heitum degi, enda sjorinn um 23 gradu heitur.
Thad er nu ad roast hja okkur velstjoronum nuna. og allt gengur eins og nysmurt. einn var ad fara i fri og einn ad koma ur frii, thannig ad eg er naestur.
Vid erum nuna ad krusa til Sardiniu a (a 18 hnutum, fullt ror) og verdum komin thangad i fyramalid, thad eru um 14 timar. Madur hefur nu heyrt ad thar se mikid um Mafiu-bofa. og tha er nu eins gott ad passa sig. enda er eg bara litil strakur fra islandi ut i hinum storra heimi ;)

Gaman ad heyra fra Sigrunu. Thorunn var voda fegin ad heyra kvedjuna...

Jaeja

ciao

Steini

Thursday, June 22, 2006

Bon Sjour!

21 júní
Jæja þá er ég komin á frönsku ríveríuna, nánar tiltekið í Antibes. Sem er frekar lítill bær á milli Cannes og Nice. Það er búið að vera nó að gera hjá okkur í vélinni.
Það eru rosalega flottar snekkjur hérna á kantinum. Við liggjum við hliðina á “Ecstacy” sem að hinn góðkunni viðskiptajöfur Roman Abromavich á. Og þetta er nýjasta snekkjan hans. En hann á fjórar slíkar í þessu stærðarflokki. Er með þær á sitthvorum stað í heiminum.
Maður hálfvorkennir hásettonum þessa dagana. Þeirr voru ad þrífa snekkjuna í allan gæradag, svo gerði smá rigningu í svona hálftíma, og rigningin er rauð. Þannig að dallurinn er aftur orðin haugaskítugur. Þannig að það þarf að þrífa allt aftur.
Ég er búin að skoða mig um hérna og fara til nice og monaco. Lýst vel á staðinn og kann vel við frakkana. Sómafólk... skil ekki allir tala illa um frakka.
En bjórinn hérna er alveg rándýr.... en þó samt ekki nálægt því eins dýr og heima

22 júní
Við erum núna á leiðinni til Napolí á ítalíu og siglun núna suður með ítalíu og verðum kominn kl níu í fyramálið. Svo byrjar fyrsta útleigan á laugardaginn. Það er óvíst hvert verður farið með gestina, en það verðu líklega í kringum ítalíu til að byrja með. Ein af gestunum er frægur hollywoodleikari!....
Annars var ég að fatta það í dag að ég er búin að vera hérna í tvo mánuði. En mér finnst líða alveg rosalega hratt. Ég fer þá í frí eftir tæpan mánuð eða 20 júlí.

Jæja bið að heilsa

Kv Steini snekkjukall

Sunday, June 11, 2006

Tvofalt blogg

Ég hef ákveðið að setja inn tvöfalt blogg núna til þess að bæta upp bloggleysið.

10 Júní 2006

Góðan Daginn.

Við lögðum af stað frá Palma í gærmorgun. og silgdum aðeins norður með eyjunni. Lögðumst svo við akkeri yfir nóttina. Í dag höfum við verið að sigla norður eftir. Og erum núna við akkeri í vog hérna í norðuhluta mallorcaeyju. Það er ólíkt landlagið hérna og mikið um há fjöll. Það er fallegt en það mætti vera betra veður. Svo leggjum við í´ann í kvöld til Frakklands. Þannig að fljótlega verður maður að spóka sig um á Frönsku ríveríunni ásamt hinu ríka og fræga fólkinu ;)
Annars er búið að vera fínt í Palma og við komum til með að koma þangað aftur í lok sumars, eða eftir útleigurnar. Ég ráfaði inn á nokkrar fasteignasölur þarna, og virðist verðið vera alveg rosalega hátt, en það væri ekki ónýtt að eiga ein íbúð í palma, og leigja hana út... en ég er í miklum fasteignahugleiðingum þessa dagana.

Ég fylgist alltaf vel með fréttunum heima í gegnum netið. Maður er alltaf að sjá meira og meira úr hvernig microsamfélgi maður kemur. og hvað er gott og hvað er slæmt við það. Á mbl um daginn þá stóð að krónan lækkaði um 2 %.á einum degi. svona sem smá frétt í viðskiptadálkinum. Það var ekki einu sinni minnst á þetta á hinnum fréttamiðlunum. Svo sá ég í ensku blöðunum forsíðufrétt að pundið hefði lækkað um 0.1% á einum degi gegn dollar... Fólk trúir því varla ef maður segir því að króna hafi fallið um 20% á þessu ári.

11 júní. 2006

Bon Sjour.

Við erum núna komnir til frakklands. Ekki nema 14 tíma sigling frá Norðurhluta Mallorca. Það er margt öðruvísi en maður hefur vanist. T.d er vélarúmið allveg vaktfrítt og maður fer bara að sofa þá svo að við séum á siglingu. Og vélarúmið mannlaust í c.a 7-8 tíma. Þetta er allveg óhætt því við erum með öflugt vaktkerfi.
Við liggjum við akkeri núna en komum til með að liggja við bryggju fljótlega í Antibes. Þar bíður okkur mikið af varhlutum og dóti. Þar á meðal einn nýr léttabátur. Vorum að fá nýtt jetski um daginn, með 1500cc mótor, því að eitt af þrem var orðið svo gamalt. (3 ára) ;)
Ég og Pétur héldum hátíðlega upp á sjómannadaginn í gærkvöldi. Með bjór á fordekkinu. Vorum svo að spá í að slást eins og ekta sjóarar, en létum það vera. sem betur fer ( fyrir hann) ;)

Bestu (sjóara) kveðjur

Guðsteinn

hit counter