Tvofalt blogg
Ég hef ákveðið að setja inn tvöfalt blogg núna til þess að bæta upp bloggleysið.
10 Júní 2006
Góðan Daginn.
Við lögðum af stað frá Palma í gærmorgun. og silgdum aðeins norður með eyjunni. Lögðumst svo við akkeri yfir nóttina. Í dag höfum við verið að sigla norður eftir. Og erum núna við akkeri í vog hérna í norðuhluta mallorcaeyju. Það er ólíkt landlagið hérna og mikið um há fjöll. Það er fallegt en það mætti vera betra veður. Svo leggjum við í´ann í kvöld til Frakklands. Þannig að fljótlega verður maður að spóka sig um á Frönsku ríveríunni ásamt hinu ríka og fræga fólkinu ;)
Annars er búið að vera fínt í Palma og við komum til með að koma þangað aftur í lok sumars, eða eftir útleigurnar. Ég ráfaði inn á nokkrar fasteignasölur þarna, og virðist verðið vera alveg rosalega hátt, en það væri ekki ónýtt að eiga ein íbúð í palma, og leigja hana út... en ég er í miklum fasteignahugleiðingum þessa dagana.
Ég fylgist alltaf vel með fréttunum heima í gegnum netið. Maður er alltaf að sjá meira og meira úr hvernig microsamfélgi maður kemur. og hvað er gott og hvað er slæmt við það. Á mbl um daginn þá stóð að krónan lækkaði um 2 %.á einum degi. svona sem smá frétt í viðskiptadálkinum. Það var ekki einu sinni minnst á þetta á hinnum fréttamiðlunum. Svo sá ég í ensku blöðunum forsíðufrétt að pundið hefði lækkað um 0.1% á einum degi gegn dollar... Fólk trúir því varla ef maður segir því að króna hafi fallið um 20% á þessu ári.
11 júní. 2006
Bon Sjour.
Við erum núna komnir til frakklands. Ekki nema 14 tíma sigling frá Norðurhluta Mallorca. Það er margt öðruvísi en maður hefur vanist. T.d er vélarúmið allveg vaktfrítt og maður fer bara að sofa þá svo að við séum á siglingu. Og vélarúmið mannlaust í c.a 7-8 tíma. Þetta er allveg óhætt því við erum með öflugt vaktkerfi.
Við liggjum við akkeri núna en komum til með að liggja við bryggju fljótlega í Antibes. Þar bíður okkur mikið af varhlutum og dóti. Þar á meðal einn nýr léttabátur. Vorum að fá nýtt jetski um daginn, með 1500cc mótor, því að eitt af þrem var orðið svo gamalt. (3 ára) ;)
Ég og Pétur héldum hátíðlega upp á sjómannadaginn í gærkvöldi. Með bjór á fordekkinu. Vorum svo að spá í að slást eins og ekta sjóarar, en létum það vera. sem betur fer ( fyrir hann) ;)
Bestu (sjóara) kveðjur
Guðsteinn


4 Comments:
Sæll vínur! Þorði ekki annað en að commenta, svona til að sýna þér fram á að það er enn lífsmark með okkur hérna á klakanum.
En hefurðu ekki sagt útlendingunum frá Players ræðunni frægu?
Gleðilegan þjóðhátíðardag pungur... vona að þú sért ekki búinn að gleyma deginum fyrst þú ert orðinn svona alþjóðlegur :)
Gleðilegan dag.
Hvernig er það, takiði ekki síestu þarna í France? erfitt að ná á þig.
Buisness... im glad to have buisness with you my friend.
:)
Bon sjour.
Takk fyrir commentin drengir... eg var ad koma ur vetfangsferd fra nice og monaco. Thad var nu islenskt vedur i dag (rigning) thannig ad thjodjarstoltid var til stadar...
"fram fram aldrei ad vikja"....
Post a Comment
<< Home