Bon Sjour!
21 júní
Jæja þá er ég komin á frönsku ríveríuna, nánar tiltekið í Antibes. Sem er frekar lítill bær á milli Cannes og Nice. Það er búið að vera nó að gera hjá okkur í vélinni.
Það eru rosalega flottar snekkjur hérna á kantinum. Við liggjum við hliðina á “Ecstacy” sem að hinn góðkunni viðskiptajöfur Roman Abromavich á. Og þetta er nýjasta snekkjan hans. En hann á fjórar slíkar í þessu stærðarflokki. Er með þær á sitthvorum stað í heiminum.
Maður hálfvorkennir hásettonum þessa dagana. Þeirr voru ad þrífa snekkjuna í allan gæradag, svo gerði smá rigningu í svona hálftíma, og rigningin er rauð. Þannig að dallurinn er aftur orðin haugaskítugur. Þannig að það þarf að þrífa allt aftur.
Ég er búin að skoða mig um hérna og fara til nice og monaco. Lýst vel á staðinn og kann vel við frakkana. Sómafólk... skil ekki allir tala illa um frakka.
En bjórinn hérna er alveg rándýr.... en þó samt ekki nálægt því eins dýr og heima
22 júní
Við erum núna á leiðinni til Napolí á ítalíu og siglun núna suður með ítalíu og verðum kominn kl níu í fyramálið. Svo byrjar fyrsta útleigan á laugardaginn. Það er óvíst hvert verður farið með gestina, en það verðu líklega í kringum ítalíu til að byrja með. Ein af gestunum er frægur hollywoodleikari!....
Annars var ég að fatta það í dag að ég er búin að vera hérna í tvo mánuði. En mér finnst líða alveg rosalega hratt. Ég fer þá í frí eftir tæpan mánuð eða 20 júlí.
Jæja bið að heilsa
Kv Steini snekkjukall


4 Comments:
já gaman að heyra að það er nóg að gera hjá ykkur.
Hér er sumarið loks komið og verður næstu daga.
kveðja, mamma
Það er aldeilis framtaksemin í skriffinskunni hjá þér núna drengur! Tvöföld innsetning tvisvar í röð! Hugsa að það hafi eitthvað með nálægðina við Cannes að gera, hef heyrt að double peneltration sé stundað þar annað slagið:)
Bið að heilsa Tony Soprano ef þú rekst á hann í Ítalíu.
Ertu að spá í að koma til Íslands í sumar orlofinu?
Ótrúlegt að það séu komnir tveir mánuðir síðan við kvöddumst með tárum á Kaffibrennslunni:)
Alla vega, hafðu það gott kúturinn, farðu gætilega að ítölunum, þeir eru víst flestir mafíubófar:)
Bestu kveðjur,
Gunnarr.
Sæll og blessaður
Gaman að sjá hvað þú ert orðinn veraldarvanur og sjóaður í þessum harða heimi. Vona að þú sjáir þér þó fært að hitta okkur sótsvartan almúgann þegar þú kemur heim í frí. Ég vona, þín vegna, að hollywood leikarinn sé leikkona því þær ku vera svag fyrir íslenskum sjóurum.
Bið að heilsa
Árni V.
Hæhæ. Logi var að segja mér frá blogginu þínu, ákvað að kíkja aðeins á þetta....vá væri maður til að vinna þína vinnu!!! Þetta er ekkert smá frábært;)
Ef Þórunn er að vinna með þér, bið ég innilega að heilsa henni og þér að sjálfsögðu líka:)
Hafðu það sem best strákur
Kveðja, Sigrún
Post a Comment
<< Home