Tuesday, September 19, 2006

Champagne

Góðan daginn... hér allt gott að frétta.
Best að hlýða Gumma.

Það er búið að vera hópur hérna öðru hvorru um borð sem er á vegum góðgerðarsamtaka sem eru tengd konunlega breska sjóhernum.
Á mánudaginn þá var mér ásamt nokkrum úr áhöfninni boðið í dinner með þeim ásamt eigandanum. Ég fór fyrir hönd vélstjórana á Leander. Þetta var flottur veitingastaður sem var bókstaflega alveg í fjöruborðinu. Þetta var mjög skemmtilegt kvöld og gaman að ræða við fólkið. Þarna voru nokkrir milljónamæringar og svo mikið köllum sem voru í sjóhernum. Ég spjallaði t.d við gamlan aðmírál sem tók þátt í þorskastríðinu, og það var mikið spurt um Ísland og einnig vélbúnaðinn á Leander. Þetta var ansi gaman, og mikið drukkið af kampavíni.

Svo á miðvikudaginn komu önnur góðgerðarsamtök eina kvöldstund, og margir skoðuðu vélarúmið og ég var í því að sýna þeim það og svara spurningum. Svo seinna um kvöldið bauð eigandinn okkur á barinn sem á sundlaugardekinu, og var spjallað og fengið sér kampavín.

Ég er farin að kunna ágætlega við þann hluta starfsins að vera með kampavínsglas í hendi og taka þátt í gáfulegum umræðum ;) Mér var hugsað til þess að fyrir ári þá var ég á frystitogara við svalbarða, vinnandi baki brotnu í veltingi og kulda. Þetta er aðeins huggulegra .

Leander virðist vera ansi lítil hérna í Antibes núna. Því að við hliðana á okkur er Octopus sem er í eigu Paul Allens microsofteiganda (http://www.etsell.com/images/Octopus.pdf) en hinumegin við okkur er svo Tatoosh sem er líka ansi stór. Þannig að við sjáum varla sólina, því að þessir risaprammar skyggja á okkur.

Framundan hjá okkur er að fara til Monaco á morgun því að þar er snekkjusýning og svo er það Tyrkland og Corfu um mánaðarmótinn. Eftir það verður svo palma og viðgerðarstop þar. Það er búið að staðfesta Karbíska og verður a.m.k ein góð útleiga, og verður lagt af stað um mánaðarmótin Nov/des frá Palma en þá missi ég af krossinu því ég verð í fríi. Ég er ekki alveg búin að ákveða hvað ég geri í næsta fríi en það er ýmislegt í spilunum.

Veðrið hefur verið mismunandi en að mestu sól. Það ringdi hressilega á fimmtudaginn, og maður tekur eftir því að það er aðeins farið að kólna, enda að koma vetur

Ég bið að heilsa að sinni
Passið ykkur að ofnota ekki kommentkerfið.

Guðsteinn

Saturday, September 02, 2006

Bonsoir Ca va

Jæja komin tími á smá pistil.

Ég er núna komin aftur til Antibes eftir c.a 5 daga “túr” með eigandan. En við fórum ekki langt, vorum á rúntinum hérna í kring. En hann kemur svo aftur á morgun og það verður einhver rúntur og einhverjir gestir. Það lenti þyrla á pallinum hjá okkur um daginn og kom með einn gest. Það var svakalegur viðbúnaður hérna, enda eru örrygismálin hjá okkur tekin svakalega alvarlega, stundum einum of. Þar sem ég er einn af reykköfurunum þá þurfti ég vera í búning og í viðbragðsstöðu. Svo var flugmaðurinn bara að senda sms á meðan hann var að lenda og mér sýnist þeirr vera glottandi yfir þessum viðbúnaði á okkur.
Veðrið hefur verið gott undanfarið, en það hefur hvesst talsvert síðdegis, og við höfum lent í því að draga ankerri, og það hefur verið forvitnilegt að fylgjast með hinum snekkjunum að berjast í rokkinu, að reyna að koma bátonum og jetskíðunum um borð.

Í fyrradag þá buðu nokkrir strákar hérna á Leander að koma með á Wakeboard sem er einhverskona sjóbretti. Við fórum á léttabát aðeins fyrir utan Antibes. Mér gekk nú ekki vel í fyrstu að ná að standa á fótunum, en eftir góða leiðsögn þá tókst mér að ágætlega, en var fljótlega dottin aftur. þetta var mikil skemmtun og gaman að sjá hina fljúga á hausinn, og að sjálfsögðu var bjór og kampavín með ;)
.
Ég var í fríi í dag, leigði mér vespu og fór langan rúnt. Keyrði mikið um í Monaco, fékk mér svo lunch í Monte Carlo. Monaco er alveg ótrúlega flott land, mjög þéttbýlt. Aðeins 2 ferkílómetrar, og búa 34.þús manns. Mesti íbúafjöldi í heimi miðað við mannfjölda á fermetra. Allt mjög hreint og snyrtilegt, mikið af háhýsum, spilavítum og flottum bílum. Ástæðan fyrir þessari aðsókn íbúa er eflust sú að þetta er skattaparadís og þurfa einstaklingar sem búa þarna ekki að borga krónu í skatt.
Síðan keyrði ég eitthvað upp í sveit og endaði upp á fjalli og villtist, það var eflaust mikil heppni að komast heim. 

Gaman að heyra frá Larsen, þakka honum fyrir góða skemmtun
Annars bið ég bara heilsa og minni á kommentkerfið.

hit counter