Bonsoir Ca va
Jæja komin tími á smá pistil.
Ég er núna komin aftur til Antibes eftir c.a 5 daga “túr” með eigandan. En við fórum ekki langt, vorum á rúntinum hérna í kring. En hann kemur svo aftur á morgun og það verður einhver rúntur og einhverjir gestir. Það lenti þyrla á pallinum hjá okkur um daginn og kom með einn gest. Það var svakalegur viðbúnaður hérna, enda eru örrygismálin hjá okkur tekin svakalega alvarlega, stundum einum of. Þar sem ég er einn af reykköfurunum þá þurfti ég vera í búning og í viðbragðsstöðu. Svo var flugmaðurinn bara að senda sms á meðan hann var að lenda og mér sýnist þeirr vera glottandi yfir þessum viðbúnaði á okkur.
Veðrið hefur verið gott undanfarið, en það hefur hvesst talsvert síðdegis, og við höfum lent í því að draga ankerri, og það hefur verið forvitnilegt að fylgjast með hinum snekkjunum að berjast í rokkinu, að reyna að koma bátonum og jetskíðunum um borð.
Í fyrradag þá buðu nokkrir strákar hérna á Leander að koma með á Wakeboard sem er einhverskona sjóbretti. Við fórum á léttabát aðeins fyrir utan Antibes. Mér gekk nú ekki vel í fyrstu að ná að standa á fótunum, en eftir góða leiðsögn þá tókst mér að ágætlega, en var fljótlega dottin aftur. þetta var mikil skemmtun og gaman að sjá hina fljúga á hausinn, og að sjálfsögðu var bjór og kampavín með ;)
.
Ég var í fríi í dag, leigði mér vespu og fór langan rúnt. Keyrði mikið um í Monaco, fékk mér svo lunch í Monte Carlo. Monaco er alveg ótrúlega flott land, mjög þéttbýlt. Aðeins 2 ferkílómetrar, og búa 34.þús manns. Mesti íbúafjöldi í heimi miðað við mannfjölda á fermetra. Allt mjög hreint og snyrtilegt, mikið af háhýsum, spilavítum og flottum bílum. Ástæðan fyrir þessari aðsókn íbúa er eflust sú að þetta er skattaparadís og þurfa einstaklingar sem búa þarna ekki að borga krónu í skatt.
Síðan keyrði ég eitthvað upp í sveit og endaði upp á fjalli og villtist, það var eflaust mikil heppni að komast heim.
Gaman að heyra frá Larsen, þakka honum fyrir góða skemmtun
Annars bið ég bara heilsa og minni á kommentkerfið.


1 Comments:
Sæll sailor!
Verð nú að láta í ljós vonbryggði mín varðandi þetta blogg þitt, er þetta nokkuð tengt samdrættinum hjá NFS? Endilega komdu nú með eina góða sögu af ykkur ríka og fræga fólkinu.
Hafðu það annars gott vinurinn!
Post a Comment
<< Home