Champagne
Góðan daginn... hér allt gott að frétta.
Best að hlýða Gumma.
Það er búið að vera hópur hérna öðru hvorru um borð sem er á vegum góðgerðarsamtaka sem eru tengd konunlega breska sjóhernum.
Á mánudaginn þá var mér ásamt nokkrum úr áhöfninni boðið í dinner með þeim ásamt eigandanum. Ég fór fyrir hönd vélstjórana á Leander. Þetta var flottur veitingastaður sem var bókstaflega alveg í fjöruborðinu. Þetta var mjög skemmtilegt kvöld og gaman að ræða við fólkið. Þarna voru nokkrir milljónamæringar og svo mikið köllum sem voru í sjóhernum. Ég spjallaði t.d við gamlan aðmírál sem tók þátt í þorskastríðinu, og það var mikið spurt um Ísland og einnig vélbúnaðinn á Leander. Þetta var ansi gaman, og mikið drukkið af kampavíni.
Svo á miðvikudaginn komu önnur góðgerðarsamtök eina kvöldstund, og margir skoðuðu vélarúmið og ég var í því að sýna þeim það og svara spurningum. Svo seinna um kvöldið bauð eigandinn okkur á barinn sem á sundlaugardekinu, og var spjallað og fengið sér kampavín.
Ég er farin að kunna ágætlega við þann hluta starfsins að vera með kampavínsglas í hendi og taka þátt í gáfulegum umræðum ;) Mér var hugsað til þess að fyrir ári þá var ég á frystitogara við svalbarða, vinnandi baki brotnu í veltingi og kulda. Þetta er aðeins huggulegra .
Leander virðist vera ansi lítil hérna í Antibes núna. Því að við hliðana á okkur er Octopus sem er í eigu Paul Allens microsofteiganda (http://www.etsell.com/images/Octopus.pdf) en hinumegin við okkur er svo Tatoosh sem er líka ansi stór. Þannig að við sjáum varla sólina, því að þessir risaprammar skyggja á okkur.
Framundan hjá okkur er að fara til Monaco á morgun því að þar er snekkjusýning og svo er það Tyrkland og Corfu um mánaðarmótinn. Eftir það verður svo palma og viðgerðarstop þar. Það er búið að staðfesta Karbíska og verður a.m.k ein góð útleiga, og verður lagt af stað um mánaðarmótin Nov/des frá Palma en þá missi ég af krossinu því ég verð í fríi. Ég er ekki alveg búin að ákveða hvað ég geri í næsta fríi en það er ýmislegt í spilunum.
Veðrið hefur verið mismunandi en að mestu sól. Það ringdi hressilega á fimmtudaginn, og maður tekur eftir því að það er aðeins farið að kólna, enda að koma vetur
Ég bið að heilsa að sinni
Passið ykkur að ofnota ekki kommentkerfið.
Guðsteinn


8 Comments:
Þakka skjót viðbrögð á blogginu, þú stendur þig eins og hetja drengur!
Talandi um góðgerðarfélög, er ekki möguleiki að koma Gáfumannafélaginu í boðssiglingu við tækifæri???
Já þú ert aldeilis duglegur í koktelboðunum!
Annars er ég búin að senda pakkan til SW.
Til hamingju með afmælið Steini minn.
Hvernig væri nú að fá sér kampavín í tilefni dagsins(kannski engin tilbreyting hjá þér).
hammó ammó
Blessaður kall!! Bið að heilsa öllum um borð sérstalega Don !!! Passaðu þig svo á kampavíninu!!!
Kv Þórunn fyrrum Leander meðlimur
Til hamingju með afmælið vinur! Var búinn að kaupa rosa flotta gjöf handa þér, en úr því þú bauðst mér ekki í afmælið til þín þá á ég hana bara sjálfur.
Til hamingju með afmælið kall.. ég væri til í að vera fluga á vegg og sjá kallinn með kampara í annari og kellu í hinni :) FLOTTTTASTUR
Baráttukveðjur
Maggi gildur limur í gáfumannafélaginu
Átti þetta ekki að vera bloggsíða? Eða var ég eitthvað að mis...?
Post a Comment
<< Home