Monday, December 25, 2006

Jólinn á sjónum

Jæja þá eru jólin gengin í garð hérna í karabíska. Við erum við ankeri á Bresku Jómfrúareyjunum. Við héltum upp á jólin um borð í dag. Ég var að vinna smá í morgun. Tók hraðbátana í smá pre-test fyrir útleiguna. Þeir virtust virka vel og fóru vel yfir 40 hnúta, tókum smá hring um fjörðinn hérna og má segja að það sé ólýsanlega fallegt hérna. Í morgunmat var svo boðið upp á kamapvín og reyktan lax. En svo eftir hádegið voru pakkarnir opnaðir og snæddur kalkún, svo var farið og leikið sér á leikföngum snekkjurnar. Við allra hugrökkustu fórum upp á brú og stukkum þaðan í sjóin, það fékk hjartað aðeins til að pumpa hraðar. eftir það fórum við crewið á ströndina og snorkluðum í kring. Það var magnað því þarna var mikið líf og mikið af fiskum, ég sá nokkuð stórra Stingray, sem er einskonar skata og nokkra flotta fiska, en ég náði að stinga mig á einhvernskonar katktus þarna niðri og eyddi svo kvöldinu með hjúkkunni að veiða broddana úr sárinu, en er orðin góður núna. Á morgun verðum við að vinna í því að undirbúa útleiguna, gestirnir mætta á þyrlu snemma á 27.

Ég vill óska Fjölskyldu, vinum og öðrum lesendum Gleðilegra jóla

p.s

Ef þið hafið ekki fengið jólakort frá mér þá hefur það líklegast týnst, því þeirr eru bölvaðir sauðir hérna. ;)

Thursday, December 21, 2006

Hvar hef ég verið allt mitt líf !!!

Hitin er yfir frostmarki, reyndar vel yfir frostmarki eða sirka 40 gráður yfir frostmarki.

Siglingin gekk vel og tók 10 daga frá palma. Við höfðum nóg að gera í vinnunni og ýmislegt fundið sér til dægrastyttingar á leiðinni. Mikið horft á dvd. Skottið á flugfiska með skammbyssu, það var ansi gaman. Á miðju Atlandshafinu var svo gleðskapur á sundlaugardekkinu til að halda upp á það að við værum hálfnuð yfir.

Við komum til Antigua í gærmorgun, og þessi staður er algjör snilld. Rosalega fallegt, flottar strendur. Flott fjöll, Ég skoði mig um í gær og svo fórum við á wakeboard,

sérstaklega forvitnilegt að að fylgjast með pelikonunum stinga sér til að veiða fisk, eftir wakeboardið silgdum við upp í fjöru og fórum á bar og fengum okkur pina colada og horfðum á sólsetrið. snilld

Þetta er ekki mjög stór staður og lítið byggt, og allt mjög frumbyggjalegt. Negranir hérna eru mjög afslappaðir, reykja bara gras og raula reggytónlist allan daginn... yaa man.

Framundan hjá okkur er að halda jólin hátiðlegt, en svo siglum siglum við til Bresku Jómfrúareyjarnar á jóladag til að taka móti gestum sem koma 27 og verða fram á nýár. En það er frægur hollywoodleikari sem að leigir yfir hátðiðarnar.

Ég sá það á mbl að duggan hans Heiðars losnaði frá landfestum, kallin er greinilega ekki alveg búin að læra hnútana ;)

Bestu Jólakveðjur

Monday, December 11, 2006

Atlandshafið

Í þessum töluðum orðum þá er ég að yfirgefa evrópu. Við tekur um tíu daga sigling yfir atlandshafið til Ameríku.
Á miðri leið verður svokallað " Mið-atlandshafspartý".

Sunday, December 10, 2006

Á sjó...

Jæja. þá erum við loksins lögð af stað í sjóferðina. Ferðinni var frestað vegna veðurs. Suss Þetta eru nú meiri bleyðurnar ... Það má ekkert hreyfa sjó, þá skíta allir í sig. Það var nú annað þegar maður var á síðutogoronum í gamla daga...
Við verðum í Gibraltar í fyramálið. tökum smá olíu fyrir atlandshafsiglinguna.

Vonandi kemst maður eitthvað í land. það er víst einhver klettur þarna sem maður getur farið upp á í kláf.

hit counter