Hvar hef ég verið allt mitt líf !!!
Hitin er yfir frostmarki, reyndar vel yfir frostmarki eða sirka 40 gráður yfir frostmarki.
Siglingin gekk vel og tók 10 daga frá palma. Við höfðum nóg að gera í vinnunni og ýmislegt fundið sér til dægrastyttingar á leiðinni. Mikið horft á dvd. Skottið á flugfiska með skammbyssu, það var ansi gaman. Á miðju Atlandshafinu var svo gleðskapur á sundlaugardekkinu til að halda upp á það að við værum hálfnuð yfir.
Við komum til Antigua í gærmorgun, og þessi staður er algjör snilld. Rosalega fallegt, flottar strendur. Flott fjöll, Ég skoði mig um í gær og svo fórum við á wakeboard,
sérstaklega forvitnilegt að að fylgjast með pelikonunum stinga sér til að veiða fisk, eftir wakeboardið silgdum við upp í fjöru og fórum á bar og fengum okkur pina colada og horfðum á sólsetrið. snilld
Þetta er ekki mjög stór staður og lítið byggt, og allt mjög frumbyggjalegt. Negranir hérna eru mjög afslappaðir, reykja bara gras og raula reggytónlist allan daginn... yaa man.
Framundan hjá okkur er að halda jólin hátiðlegt, en svo siglum siglum við til Bresku Jómfrúareyjarnar á jóladag til að taka móti gestum sem koma 27 og verða fram á nýár. En það er frægur hollywoodleikari sem að leigir yfir hátðiðarnar.
Ég sá það á mbl að duggan hans Heiðars losnaði frá landfestum, kallin er greinilega ekki alveg búin að læra hnútana ;)
Bestu Jólakveðjur


2 Comments:
Já það verða sennilega rauð jól hjá þér eins og okkur á klakanum, usss hvað maður væri samt til í það að liggja bara í sólinni um jólin!!
En Steini þú ættir nú að vita hvernig suðvestan áttin er þarna á Skaganum! eða gleymist það kannski í sólinni.
Óska þér annars gleðilegan Þorlák! engin skata þarna hinu megin?
Gleðileg jól Steini okkar og njóttu þess að vera í sólinni þarna. Biðjum að heilsa Edda og co
Post a Comment
<< Home