Jólinn á sjónum
Jæja þá eru jólin gengin í garð hérna í karabíska. Við erum við ankeri á Bresku Jómfrúareyjunum. Við héltum upp á jólin um borð í dag. Ég var að vinna smá í morgun. Tók hraðbátana í smá pre-test fyrir útleiguna. Þeir virtust virka vel og fóru vel yfir 40 hnúta, tókum smá hring um fjörðinn hérna og má segja að það sé ólýsanlega fallegt hérna. Í morgunmat var svo boðið upp á kamapvín og reyktan lax. En svo eftir hádegið voru pakkarnir opnaðir og snæddur kalkún, svo var farið og leikið sér á leikföngum snekkjurnar. Við allra hugrökkustu fórum upp á brú og stukkum þaðan í sjóin, það fékk hjartað aðeins til að pumpa hraðar. eftir það fórum við crewið á ströndina og snorkluðum í kring. Það var magnað því þarna var mikið líf og mikið af fiskum, ég sá nokkuð stórra Stingray, sem er einskonar skata og nokkra flotta fiska, en ég náði að stinga mig á einhvernskonar katktus þarna niðri og eyddi svo kvöldinu með hjúkkunni að veiða broddana úr sárinu, en er orðin góður núna. Á morgun verðum við að vinna í því að undirbúa útleiguna, gestirnir mætta á þyrlu snemma á 27.
Ég vill óska Fjölskyldu, vinum og öðrum lesendum Gleðilegra jóla
p.s
Ef þið hafið ekki fengið jólakort frá mér þá hefur það líklegast týnst, því þeirr eru bölvaðir sauðir hérna. ;)


6 Comments:
Ég er nú alveg hissa fórstu ekki í kirkju um jólin hemm
ps. Hverning var hjúkkan tók hún í alla broddana sem stóðu út í loftið? (happy ending)
He HE. Maggi alltaf jafn klúr
Gleðilega hátíð kallinn! Gaman að heyra hvað þetta gengur vel hjá þér, fyrir utan þetta með broddana, vona að hún hafi ekki slitið þá alla af.
sæll pungur. ég var að reyna að kíkja á þig um daginn en ég náði ekker í þíg í síma, en ég er ekki frá því að ég hafi séð þig þarna á dallinum. Gleðilegar átíðar var á cubu um jólin. En þú vanst þennan og varst einum degi á undan í karabíska.
SSV hvassviðri frost og gengur á með éljum, svona hljómar þetta hérna. en þarna !!! ?
Blessaður Logi!!!
Það hlaut að vera að þú hefðir verið hér um slóðir, því verðið á Romminu hefur rokið upp. þú hefur gengið þokkalega á Rommbirgðirnar hér í karabíska ;)
Já það svipað veður hérna
kv
Post a Comment
<< Home