Tuesday, March 20, 2007

West Palm Beach

Góðan kvöldið

Ferðinn gengur vel, höfum ekki lent í neinu alvarlegum hrakningum ennþá, búnir að keyra um 2000 km, veðrið hefur leikið við okkur, nema í dag þá var ringdi rosalega.

Um helgina vorum við tvær nætur á Suður Strönd (South Beach) sem er rétt fyrir utan Miami, það var mjög gaman og mikið stuð þarna, enda springbreikið í hámarki, margt áhugavert að sjá, En þetta er örruglega einn mesti snobbstaður í heimi, og það snýst allt um að sýnast.

Í gærmorgun keyrðum við alveg niður til Key West, syðsta hluta bandaríkjana, en þaðan eru ekki nema 90 mílur til kúpu, það var skemmtilegt útsýni á leiðinni, svo kíktum við aðeins á næturlífið í Key West sem var ansi.

Svo í dag keyrðum við til West Palm Beach og erum þar nú, og ætlum að halda áfram norður eftir á morgun.

Hér er svo mynd af Heiðari ásamt mjög ábyggilegum lögregluþjónum í Key West, en hann bað um að vera myndaður með þeim. (takið eftir tækjabeltinu)
Ef þið klikkið á myndina þá ættuð þið að komast inn á myndaalbúm sem inniheldur myndir úr ferðinni.


0 Comments:

Post a Comment

<< Home

hit counter