Thursday, March 15, 2007

RUGL



Já þá getur maður krossað við enn eitt boxið yfir það sem maður hefur ætlað sér að prófa í lífinu...
Við mættum á svæðið snemma, þurftum að bíða smá, á meðan fylgdumst við með nokkrum ellilífeyrisþegum að vera stökkva, svo ræddum við um slys í fallhlífarstökki, og komust að því að þau væru nokkuð algeng.
Ferðin í flugvélinni á leiðinni upp var frekar erfið, ég var sífellt að reyna að hugsa um eitthvað annað, eitthvað fallegt. Svo var mér litið út um gluggan, þá kemur upp í hugann, “ég er að fara stökkva út úr flugvélinni eftir smá stund...shiturinn” við fórum í 13500 fet eða í 4 km hæð. þá var bara að koma sér út.
Ferðin niður gekk mjög hratt fyrir sig, vægast sagt geggjuð upplifun að vera svona í frjálsu falli. En við féllum um 10 þús fet í frjálsu falli.

Þetta er það rosalegasta sem maður hefur prófað.

Eftir stökkið keyrðum við til Tampa, skoðuðum okkur þar um og fórum á sædýrasafn, keyrðum svo til Sarasota þar sem við erum á Moteli núna, Í dag ætlum við að kíkja á ströndina hérna og halda svo suður með sjó, þar sem allt snýst um S-inn þrjú: Sun, Sea and S**.....

Hér koma svo nokkrar myndir, en þetta var allt tekið upp á DVD



Hvergi banginn




Einn tveir og hoppa.....





I can Fly...





Heiðar á hraðri niðurleið 200 km/klst




5 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Shit!!

8:38 AM  
Anonymous Anonymous said...

Glæsilegt félagi agalega hlítur þetta að hafa verið gaman.
Væri alveg til í að vera ameð ykkur bræðrum núna í staðin fyrir að vera ca 1000 mílur úti í atlantshafinu í kaldaskít...
Hafiði það gott og sjáumst hinumegin.
Sýnist nú reyndar "Kallinn" vera eitthvað lítill í sér þarna í dyrunum:)
Kv Elís Pétur

10:02 AM  
Anonymous Anonymous said...

Steini, hvað ertu að gera með mann aftan á þér? Var þetta líka svona í köfuninni, með þessari ítölsku?

10:06 AM  
Anonymous Anonymous said...

djö.. vitleysa í ykkur drengir.
Þá eru þið búnir að prófa þetta.

4:27 PM  
Blogger Guðsteinn said...

Gummi: Ég veit ekkert hvaða maður þetta er, og hvað hann gera þarna.

Mamma: Já Þetta er algjört æði. Heiðar er orðin sjúkur, og hlakkar mikið til að fara næst... þá getur þú fengið að fara með!

Kv steini

p.s
Erum í Fort lauderdale. keyrðum 200 mílur í dag.

4:36 PM  

Post a Comment

<< Home

hit counter