Tuesday, March 13, 2007

Orlando

Góðan dag.

Ferðin hefur gengið vel hingað til, í dag keyrðum við til Daytona Beach og chilluðm á ströndinni, svo keyrðum við niður með austurströndinni og skoðuðum Geimafarasafn sem áhugavert, eftir það fór við til Kissime sem er úthverfi í Orlando, erum á prýðis moteli.

Á morgun þá byrjum við á því að fá okkur staðgóðan morgunverð, það er nauðsynlegt, því að dagurinn á eflaust eftir að taka á taugarnar, en plannið er að fara í fallhlífarstökk, vera í frjálsu falli í eina mínútu á c.a 200 km hraða. Eftir það ætlum við að keyraa til Tampa






5 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Jæja piltar!

Gaman að sjá að þið hafið það gott í útlandinu. Hverning er með litla brósa, er hann byrjaður í spring break gellunum? Ég ætla bara að biðja þig að skila til hans að passa sig að fá ekki kvef í félagann, því það er ekki víst að hann eigi alltof gott með að fá lækningu meina sinna þegar hann snýr aftur heim á Vopnafjörð. Er þetta tattú sem maður sér glitta í á hægri öxlinni á Heiðsa? Jæja bið að heilsa ykkur, skemmtið ykkur vel og vertu duglegur að blogga, það styttir manni stundir hér uppi á klakanum!!

Kveðja Árni Viggó

2:58 AM  
Anonymous Anonymous said...

Where are the ladies Boyo?

4:23 AM  
Anonymous Anonymous said...

Þið bræðurnir eruð nú orðnir svo miklir lífskúnstnerar að Lýður vinur okkar Oddsson má fara að vara sig.
Vona annars að fallhlífin hafi opnast í dag svo þið náið að lesa þetta. Góða skemmtun!

4:16 PM  
Blogger Guðsteinn said...

Sæll Árni... Ég hef ekkert hald á honum lilla, sem betur fer komast ekki nema tvær í bílinn í einu. Já þetta er Tattú, meirasegja Tælenskt Tattú sem þvæst ekki af.

5:14 PM  
Anonymous Anonymous said...

Já þetta grunaði mig, hann er öflugur sá stutti! En hvernig er með þig Gussi minn, þú ert í náttúrulega í hlutverki siðapostula, og passar upp á að menn séu ekki að gera neitt ósiðlegt, eins og þinn er vani á ferðalögum hvar sem er í heiminum?

2:46 AM  

Post a Comment

<< Home

hit counter