Vélaverksmiðja, Vinnustaðapartý, Föt, Jakki, Afmæli og króm
Skrifad fimtudagskvoldid 27.4
Í gær fórum við nokkrir officerar að skoða Vélaverksmiðju sem er hérna á slippsvæðinu, Þarna voru stórar skipavélar framleiddar. Það var magnað að skoða það.
Svo um kvöldið var okkur áhöfninni á “Leander” boðið í partý af skipstjórananum á “Rising Sun”. Svona vinnustaðarpartý. Partýið var haldið á bryggjunni fyrir framan rising sun það var grillað og boðið upp á drykki. Það var gaman að spjalla við crewið á rising sun.. það kom víða að. Mest bretar og nýsjálendingar, svo nokkrir Fílíbínó í þrifonum. Svo hitti ég Svía og Danskan vélstjóra. Það eru rúmlega 50 í áhöfn!! Hún er bara notuð privat og mest 3 mánuði á ári. Og aldrei fleirri en 8 gestir. Við fórum um borð og skoðuðum okkur um.
Hún er rosalega flott. Ég skoðaði vélarúmið sem er bara Rugl. 12 þúsund hestafla MTU. Ekki bara ein svoleiðis, Heldur fjórar. Þannig að það eru tæp 50 þús hestöfl til að koma henni áfram. Rúmlega 30 hnúta. Og þá er eyðslan tæp 200 þús lítrar á sólahring. RUGL. Svo er gangur í gegnum vélarúmið með gluggum svo gestirnir geti skoða vélarúmið án þess að heyra hávaða, eða finna e-t lykt. Þetta var voða gaman. En það er víst mikið um svona partý, það er gaman að hitta aðra sem eru í bransanum og spjalla vid hugulegu thernunar :).
Ég er búin að fá fullt af fötum. Þar á meðal nokkur uniform og er eitt alhvítt. Hvítar buxur hvítir skór....svo hendir maður bara fötunum í þvottahúsið þegar þau eru óhrein, þernunar sjá svo um að þvo, strauja og setja svo inn í skáp hjá mér.....Snilld.
Ég fékk meðal annars fóðraðan jakka. Ég spurði í ganni eina þernu, hvort maður hefði einhverja þörf fyrir svona jakka í sólinni.... Hún sagði að þeirr hefðu komið að góðum notum um árið þegar snekkjan var einn mánuð í noregi og svíðjóð. Hún sagði að það hefði verið alveg rosalega kalt á kvöldin. Það var víst í júlí.... Þetta lið veit greinilega ekki hvað kalt er....
Ég er á minni fyrstu vakt núna. Ég vinn til fimm og svo tek ég bakvakt þriðja hvern dag. Svo þegar ég fer að sofa þá stilli ég vaktkerfið á panellin í klefanum. Það eru voðalega fáir um borð, því það fóru flestir í keilu, Ég kann mig rosalega vel í vinnunni og þetta er mjög fjölbreytt og skemmtilegt. Nóg að gera en samt ekkert stress. Vinnuaðstaðan er ótrúlega góð. Öll tæki og verkfæri eru af dýrustu og bestu gerð. Hérna er aldrei neitt sparað. Ef eitthvað er orðið lélegt þá er bara keypt nýtt. Þetta er ekki rekið sem fyrirtæki sem á að skila gróða.... It’s just for pleasure $$$
Til hamingju Heiðar með afmælið. Eina afmælisgjöfinn sem mér dettur í hug og veit að myndi gleðja þig er Andrésblað....... en ég veit ekki hvort þeir eiga Andrés eða syrpuna hér á spáni....
Jæja best að fara og spegla sig aðeins í króminu niður í vél áður en maður fer að sofa...
Góða nótt.



