Sunday, May 28, 2006

sólbrenndur með quick tan brúsa.....

Jæja.. það er allt ágætt að frétta héðan….

Það var gaman að hitta Heiðar og Atla í vikunni, Ég fór nokkrum sinnum til þeirra á vespunni, og svo komu þeirr hingað til palma, við skoðuðum okkur um hérna og fórum flott út að éta. Allir búllueigendur virðast vera mjög glaðir hér eftir að hafa fengið þá.

Það er búið að vera nóg að gera í vinnuni, hef verið að vinna soldið í hraðbátonum. Svo hef ég farið í nokkrar testferði ásamt fleirrum, það vantar ekki upp á aflið, settum hann í 42 mílur. Þetta er rosalega góðir og vandaðir bátar, en þeirr eru sérsmíðaðir og það eru svona smágallar hér og þar. Og vont að komast að hlutum. Annars finnst mér starfið fjölbreytt og skemmtilegt..

Eigandinn er komin aftur um borð ásamt fleirrum gestum. Við sigldum aðeins út fyrir palma í dag og lögðum akkeri á rosalega flottum stað. Ég tók smá sundsprett eftir vinnu og var sjórinn tær og hlýr. Við vorum svo að koma aftur núna til Palma.
En plannið er að fara til Frakklands núna á þriðjudagskvöld……..

Annars hef ég ekki meira að segja að sinni…… endilega kommenta svo… svo er ég oftast online á skypinu.

Kv
Steini

Tuesday, May 16, 2006

Enntha i palma

Jæja vegna fjölda áskorana hérna á kommentkerfinu þá hef ég ákveðið að láta undan og skrifa smá pistil. Það er annars lítið að frétta hér úr hverslagleikanum í Palma.
Eigandinn er um borð en ég hef nú ekki hitt hann ennþá. Allir eru komnir í einkennisbúning, og ég er í nýstrauaðri hvítri skyrtu, með tvær strípur á sitthvorri öxlinni. Það er margt skrýtið í þessum bransa sem maður er að vinna í. T.d er eigandinn með tvo kokka og fullt af þjónustuliði í vinnu hérna um borð en fer samt oftast út að borða ;)

Ég er að komast meira inn í starfið og líkar mér það ennþá mjög vel. Hef soldið verið að vinna á svæðinu sem að gestirnir eru og maður er ennþá að dást af íburðinum og flottheitunum þar. Manni lýður stundum eins og maður sé staddur í James bond mynd.

Ég er með vespu á leigu og hef verið að rúnta um og verið að skoða mig um hérna í Palma og mér þykir þetta skemmtilegur staður. Það er ekkert rosalega mikið um túrista ennþá.

Á sunnudagin fór ég ásamt fleirrum að skoða þriggja mastra seglskip hérna í höfninni sem að tvö hérna voru einu sinni að vinna á. Það var mjög áhugavert. Segl og reiði eru eins og voru í gamla daga, og engar rafmagns eða vokvavindur. Það eru um 70 í áhöfn og flest unglingar sem er verið er að reyna að gera að mönnum með því að kenna þeim að sigla.

Það verður gaman að hitta Heiðar og bjóða honum upp á spænskt Tónic. Það getur verið að maður skreppi á hjólinu til palma nova á morgun, En það er bara hérna rétt hjá.Það er alltaf sama blíðan og maður hefur ekki orðið var við eitt ský síðan við komum til palma.

Það lýtur út fyrir að ég fari í frí í lok júlí. Þar sem ég vinn þrjá mánuði og einn í frí. Þá er aldrei að vita nema maður hætti sér norður á Íseyjunna í smá tíma rétt áður en vetrarhörkunar skella á ;)
Ég ber bestu kveðju til allra .


p.s
Hvernig er það eiginlega…. Er hann Gunni vinur minn alveg hættur að kommenta ???

Monday, May 08, 2006

Palma Mallorca

Við lögðum á stað frá Cartagena kl fimm í gær og var stefnan tekin norðaustur og silgt var á fullu afli (18 hnútum)... og komum til Palma kl 8 í morgun. Siglinginn gekk vel. Skipið fer vel í sjó og hreyfist varla. Skipið er útbúið jafnvægisbúnaði “stabilizer”, það eru vökvaknúnir uggar neðanlega á skrokk skipsins, sem að snúast gegn við hreyfingu skipsins og sjá um að halda því stöðugu. Ekki mjög flókin búnaður en gerir rosalegt gagn.

Hér í palma er nátturlega algjört majorca veður, (enda er þetta á mallorca, haha). Ég lagði mig á tekk-klædda fordekkinu í hádegishléinu, og fékk smá roða fyrir vikið.

Það er alveg rosalega mikið af skútum og snekkjum hérna og nokkrar í sama stærðarflokki og “leander”. Ég tók smá bryggjurölt eftir vinnu og það var margt skoða. Ég á eftir að skoða mig betur um enda verður nægur tími til þess, við verðum að a.m.k tvær vikur hérna, og komum svo líklega aftur í lok sessonsins.

Fleira var það ekki að sinni
Bið að heilsa

Friday, May 05, 2006

Palma a sunnudagskvold

Það er lítið að frétta nema að brottför frestast aðeins. En það er stefnt á að fara á sunnudagskvöld. Ástæðan er sú að það fannst sprunga í afgaskerfinu, þannig að það það er búið að taka allar krómhlífarnar af og stendur til að sjóða. Vélarúmið lýtur ekki vel út núna, allt í sótti.
Við fengum að vita í dag að það er búið að óska eftir að fá snekkjuna leigða yfir kvikmyndahátíðina í khan. En thad er í kringum 20 maí. Það ku vera e-t rússnenskur auðkýfingur.
Skipstjórinn var að koma úr fríi og virðist hann vera mjög fínn. Svo er ég núna búin að læra öll nöfnin og maður farin að kynnast öllum betur. Þetta er virðist allt sómafólk og margir víðförlir. Sumir eru búnir að vera um borð lengi 6-7 ár.
Maturinn er alltaf jafn frábær. Eina sem er ekkert rosalega gott er fiskurinn. Maður er vanur svo góðum fiski úr norður-atlandshafinu. Kokkurinn er dönsk stelpa, og maður stundum ad reyna ad spreyta sig á dönskunni (hvad skal vi spise i aften, tusund tak ) ;)
Veðrið er alls ekki gott. Það hefur verið að mestu skýjað og hitin ekki nema 18 stig. brrrrrr......

Við ætlum að kíkja nokkur á pöpp á eftir í bæ (La Manga) sem er hérna rétt hjá... en samt ekkert rall ;) Því ég á vakt á morgun. Svo sunnudagin held eg til hafs, og tekst a vid sjomennskuna, en hun er vist ekkert grin


Árshátíð gáfumannafélagsins verður haldin um helgina á Akureyri. Mér þykir leit að komast ekki á hana. En það verður eflaust gaman að skoða dagbók lögreglunar á mánudaginn.


Þakka fyrir kveðjuna vinur....Logi List ;)

Wednesday, May 03, 2006

A floti

Tha er snekkjan komin a flot. I gaer var snekkjan dregin ut ur husinu, og a sleda sem var slakkad nidur i sjo. thad var magnad ad fylgjast med thessu. thad voru notadar thrjar storrar hjolaskoflur til ad draga sledan sem snekkjan satt 'a. Thad gekk erfidlega fyrst og mikid spolad.. Vid liggjum nuna vid bryggju i cartagena. Thad er buid ad vera soldid mikid ad gera hja okkur i veladeildinni. og margt nytt fyrir manni og madur er sispyrjandi eins og bjani ;) en thannig laerir madur nu fljotast og best. Starfsfelagarnir eru mjog finir og serstaklega hann P'all Sjobirtingur (Paul seabright) sem hefur mjog gaman af thvi ad kenna manni. Nuna er gerfihnattasjonvarpid komid a og Internetid sem er snilld. Nu er haegt ad raeda vid mig um allt mogulegt a skype og kallast eg gudsteinn thar.( kem til med setja thad a bakbordshlidina a siduna). Thad eru nokkrir spaenskir idnadarmenn ad vinna um bord. og thar sem ad spaenskunnatan min er mjog takmorkud tha tharf eg ad leika fyrir tha thegar eg tharf ad lysa fyrir theim einhverju....(muja problemo).
Thad stendur til ad sigla til mallorca a fostudag eda laugardag. og tekur thad taepan solahring a 18 hnutum. (fullt ror) tha kemur bossinn um bord og verdur e-t svo verdur fyrsta utleigan i antibes, r'ett hja nice, frakklandi og svo verdur thad monaco, italia svo einhver runtur um midjardarhafid.
Thad er buid ad vera skitavedur herna a spanni sidustu tvo daga. helvitis nordangarri. og eg sa i dag ad allir hasetarnir voru komnir i ulpunar sinar og voru med hufu. samt var mer ekkert kalt tho svo ad eg vaeri a stuttbuxum og bol.

Thar sem enskumaelandi folki gengur erfidlega ad bera fram skirnarnafnid mitt tha hef 'eg hlotid n'ytt gaelunafn. og nuna er eg kalladur "Gudie" eda gud'i um bord. thad er fint. en thetta er vist algengt gaelunafn i englandi.

Takk fyrir kvedjunar Arni og Palli pilsner.

fleirra verdur ekki 'i pistlinum i kvold....
veridi sael

p.s
hvernig er thad er mamma haett ad kommenta ;)

hit counter