Back to the Boat
Góðan daginn hér...
Þá er ég komin aftur til skips eftir tæpt mánaðarlangt sumarfrí. Þetta var ágætisfrí og gerði ég margt skemmtilegt og gaman að hitta hina og þessa. Það sem stendur upp úr er án efa hringferðin sem ég fór með Heiðari sem endaði með góðu geimi á Akureyri. Þar sem bakkus var heldur betur með-í-ferð.
Ég var í þrjár nætur í Nice áður en ég kom um borð. Ég hitti einn íslenskan sjóara sem var að skoða snekkjubransan, þvældist soldið með honum , svo leigði ég vespu einn dag og skrapp til Monacco, Antibes og Cannes. Ég er farin að kunna mig bara vel hérna á ríveríunni og þykkir mér frakkarnir bara fínir og ég náði að kynnast skemmtilegu fólki.
Það er en óvíst með framhaldið hjá okkur. Það verða örruglega ekki fleirri útleigur að sinni og eigandin fer að koma um borð, það verða einhvern kokteilboð og veislur um borð. Við verðum hérna á ríveríunni og kíkjum kannski til palma. En svo stendur til að fara til Tyrklands og vera þar í ca fjóra vikur og svo til Corfu á grikklandi. Þar er ég nú heldur betur kunnugur. hef silgt þar um á skútu. Svo til palma og svo líklega til karabíska seint í haust, en það er samt ekki alveg ákveðið.
Vinnan gengur ágætlega, og það var gaman að hitta liðið aftur. Það er ekkert svakalega mikið að gera hjá okkur. En samt alltaf eitthvað. Veðrið hefur verið eins og best verður á kosið.
Meira hef ég ekki að segja að sinni.... en ég lofa meira krassandi næst...fljótlega..
En þangað til næst veriði sæl.
Guðsteinn


2 Comments:
Sæll!
Ég frétta að þið hefðuð lent í norðan garra og leiðindum.... er það hægt þarna suðurfrá?
Ja annars er spáð Sól og 10 stiga hita hérna á laugardaginn, ;)
sæll félagi!
Þakka þér fyrir síðast það var helviti gaman að fá ykkur bræður i heimsókn og hitta ykkur svo á Akureyri.
Hafðu það gott hvar sem þú ert staddur núna;)
Kv. Atli
Post a Comment
<< Home