Saba
Þá er ég komin með köfunarréttindi, kláraði námskeiðið í gær og þreytti próf sem ég stóðst. Það er búið að vera geggjað að kafa hérna, mikið að sjá. Fyrst byrjum við á því að keyra í c.a 20 mín og svo förum við á bát að kóralrifi, það er yfirleitt kafað tvisvar í c.a 40 mínútur í senn.. og farið niður á c.a 20 metra dýpi. Ég hef farið á nokkra köfunarstaði og er lífríkið mjög mismunandi, það sem ég er búin að sjá er mikið af skjaldbökum, stórrar barracudur og svo mikið af litlum hákörlum, alskonar fiskar og furðuverur sem ég kann ekki að nefna svo eru sumir fiskarnir mjög litríkir og furðulegir í laginu, eins og í nemo teikinimyndinni. Ekki spillti fyrir að kennarinn minn var mjög hugguleg og skemmtileg ítölsk stúlka. Það er gott að vera komin með réttindi, get ég vonandi kafað í miðjarðarhafinu í sumar, og svo kannski í þingvallavatni.... já eða bara í sundlauginni í Borgarnesi.
Saba er skemmtileg eyja en frekar róleg. Þetta er í rauninni bara eitt stórt eldfjall, hér íbúatalan svipuð og í Borgarnesi, og samfélagið eflaust svipað að mörgu leyti. Aðal atvinnugreinin hérna er túrisminn en hér kemur fólk allsstaðar úr heiminum til þess að kafa eða að fara í fjallgöngur. Hér er bara einn vegur, og er hann í kringum eyjunna og kallast hann ”the road”
Ég er búin að kynnast mikið af fólki hérna allstaðar að. Það alltaf gaman kynna sig sem Íslending, og maður fær oft skemmtileg komment sérstaklega frá ameríkönum. Eins og t.d, yeee I heard the population in iceland is very low, only 5 millions or something???????
Í fyrradag þá spjallaði ég við kana í bílnum á leiðinni í köfun. Ég sagði honum að ég væri frá Íslandi og fræddi hann mikið um land og þjóð, hann virtist mjög áhugasamur.
Svo í gær hitti kappann á pöppnum, þá var hann með konunni sinni. Hann kynnti mig fyrir henni með eftirfarandi setningu: This is Goody he is from Greenland!!! Ég starði bara á hann hugsaði með mér að það borgaði sig ekki að leiðrétta hann. Hann ætti það ekki skilið, hann væri of heimskur. En mig langaði til að spurja hann hvort að ég liti út eins og einhver helvítis Grænlendingur...
Á morgun flýg ég til St martin í eldgamalli smárellu, flugbrautin hérna er mjög stutt og getur bara fáar tegundir af flugvéllum lent hérna. St martin er algjör stuðstaður, ef Saba er eins og Borgarnes þá er Saint martin eins og 101 miðbær. Ég ætla að reyna að hitta á gamlan skipsfélaga sem er að vinna á snekkju þarna, en hann var með okkur á leander í sumar. Ströndin á st martin er cool, hún er við enda á flugbraut, það er mjög vinsælt að vera þar og fylgjast með stórru boeing þotunum lenda, en það liggur við að maður geti snert þær. Svo þegar þær taka á loft, þá kemur mikil vindhviða og feykir öllum handklæðum og draslinu í loftið.
Svo á sunnudaginn flýg ég til fyriheitna landsins. keyri svo á mánudagsmorgunin til Orlando til að pikka upp drenginn.


2 Comments:
Vá alveg geðveigt að lesa um ævintíri þín á vessum slóðum. Ég bið kærlega að heilsa þér vinur og vona að þið bræður njótið springbrake alveg útúr og innúr. K.k Logi.
Já það er aldeilis stuð á þér, en ég næ nú samt alveg að lesa það á milli línanna að þetta jafnast ekki á við Borgarnesið góða!
Post a Comment
<< Home