Saint Martin
Góðan og blessaðan daginn.
Þá er komið að því að blogga smávegis.
Núna erum við stödd á eyjunni saint Martin, nánar tiltekið á hollenska hluta eyjarnar, en eyjan skiptis í tvo hluta, annar er franskur en hinn hollenskur, þessa eyju fann Kristófer Kólumbus á sýnum tíma.
Í vinnuni í dag fór ég í land að versla fyrir véladeildina, varahluti verkfæri og fleirra, það er sæmilegt að versla hérna. og var ég ónýskur að versla ýmislegt sem okkur vantaði. Í Antigua er ekkert hægt að fá og þurfum við að panta frá Florida og það tekur óratíma. Þetta er galli við karabíska, það er erfitt að fá varahluti, ekki eins og í Evrópu.
S.l daga þá höfum við verið að rúnta hérna í kring. Þetta eru magnaðir staðir, og veðrið hefur verið alltaf það sama, þó gerir stundum síðdegisskúrir og rignir þá hressilega, hér er alltaf stöðug gola frá atlandhafinu sem að einkennir þennan hluta karabíska hafsins.
Núna á fimmtudagin koma svo gestir og verða í 10 daga.
Það verst komast ekki á Þorrablót í ár....
Hilsen


6 Comments:
Hvenær kemur dallurinn til íslands? það gæti orðið gott partý....
Þú gætir kannski leigt hann fyrir afmælispeningana... fínt að leggja honum fyrir framan kolaportið og bjóða dömum í partý...
Can you write a blog in Engleesh please thanking you o so very much
http://www.savethewhales.org/
Blessaður!
Þetta er þá svipað og hérna á vopnafirði, rignir svona seinnipartinn, en þó hefur sólin ekki látið sjá sig síðustu 3 mánuðina.
Annars bar Birna kveðju til þín, en hún er á leiðinni í djeilið dúllan, svo biðja stelpunar í kaupfélaginu heilsa þér líka.
Jæja bið heilsa í sólina..
Well written article.
Post a Comment
<< Home