Sunday, March 11, 2007

Hello America

Í þessum töluðu orðum þá fer ég að leggja af stað til Bandaríkjana. Í gær gerði ég ekki mikið, hékk á sunset bar og las bók, fylgdist með flugumferðinni, það er gaman að fylgjast með þegar stóru þottunar taka á loft, sumir átta sig ekki á vindinum sem kemur, ætla vera sniðugir, standa beint fyrir aftan og taka mynd, en fá svo hressilegan sandblástur og hlaupa æpandi út í sjó hehe, svo voru nokkrir sem að héltu sér í grindverkið, og voru svo lóðréttir þegar vindurinn var sem mestur.

Í gær var auglýst á barnum “Toppless girls drink for free” þetta þótti mér mjög sniðugt í fyrstu og hugsaði mér gott til glóðarinar.

En að sjálfsögðu voru fáar ungar og fallegar stúlkur sem tóku þessu tilboði, en fullt af gömlum krumpuðum kerlingaherfum slóu til. Það hefði hinsvegar verið fyndið að fara til þeirra og bjóðast til að borga alla drykki fyrir þær ef þær vinsamlegast klæddu sig aftur í.



Hér er youtube video frá sunset bar



0 Comments:

Post a Comment

<< Home

hit counter