Wednesday, March 28, 2007

Áfram Ísland

Daginn

þegar ég kom í vegabréfaskoðuninna í Palma, þá var engin í röðinni, bara tveir menn innan við glerið, þeirr skoðuðu vegabréfið vandlega, og litu á mig alvarlegum augum, svo tók annar upp skæri og hugðist klippa, hristi hausin og muldraði "Islandia". svo fóru þeirr að skellihlæja og buðu mig velkomin. mikið grín hjá þeim...

Annars hef ég það bara fínt hérna, það er reyndar kalt og engin kynding í íbúðinni sem ég er í ,þannig að það verður skítkalt á nóttinni. ég er búin að vera þvælast um palma og kíkja á
Pétur. Það mikið af túristum hérna núna. Ég fór svo út að borða með nokkrum félögum í gær, og kíktum á aðeins pöppinn. Svo tilkynnti vinur minn það að Ísland ætti að spila við Spánn í kvöld hérna á majorca og það væri búið að kaupa miða og skippuleggja ferð á leikinn. Þannig að ég er orðin rosalega spenntur að sjá Eið og félaga rúlla upp spannjólunum. spurning hvort að það verði mikið af íslenskum stuðningmönnum???
Ég fer að vinna á mánudaginn (hvað er það aftur?)


kveðja Guðsteinn

var að setja fleirri myndir inn.

http://picasaweb.google.com/gudsteinn

Saturday, March 24, 2007

Take off bar

Góðan dag

Nú er ég staddur á Orlando flugvelli, er á leið til palma með millilendingu í London, verð í Palma um miðjan dag á morgun, Leander er mætt á svæðið, en ég byrja ekki að vinna fyrr en eftir viku, Ég skutlaði Heiðari áðan á Sanford flugvöll, þaðan sem hann flýgur.
Síðustu dagana höfum við verið hérna í kringum Orlando, fórum í skemmtigarð og testuðum nokkra rússíbana, og versluðu aðeins.

Eru ekki allir hressir annars

Tuesday, March 20, 2007

West Palm Beach

Góðan kvöldið

Ferðinn gengur vel, höfum ekki lent í neinu alvarlegum hrakningum ennþá, búnir að keyra um 2000 km, veðrið hefur leikið við okkur, nema í dag þá var ringdi rosalega.

Um helgina vorum við tvær nætur á Suður Strönd (South Beach) sem er rétt fyrir utan Miami, það var mjög gaman og mikið stuð þarna, enda springbreikið í hámarki, margt áhugavert að sjá, En þetta er örruglega einn mesti snobbstaður í heimi, og það snýst allt um að sýnast.

Í gærmorgun keyrðum við alveg niður til Key West, syðsta hluta bandaríkjana, en þaðan eru ekki nema 90 mílur til kúpu, það var skemmtilegt útsýni á leiðinni, svo kíktum við aðeins á næturlífið í Key West sem var ansi.

Svo í dag keyrðum við til West Palm Beach og erum þar nú, og ætlum að halda áfram norður eftir á morgun.

Hér er svo mynd af Heiðari ásamt mjög ábyggilegum lögregluþjónum í Key West, en hann bað um að vera myndaður með þeim. (takið eftir tækjabeltinu)
Ef þið klikkið á myndina þá ættuð þið að komast inn á myndaalbúm sem inniheldur myndir úr ferðinni.


Saturday, March 17, 2007

Heidar-Tandem-Skydive

Tandem skydiving in Z-hills Florida USA

Skydive-Gudsteinn

Tandem jump in Zeperhills florida, skydive city

Thursday, March 15, 2007

RUGL



Já þá getur maður krossað við enn eitt boxið yfir það sem maður hefur ætlað sér að prófa í lífinu...
Við mættum á svæðið snemma, þurftum að bíða smá, á meðan fylgdumst við með nokkrum ellilífeyrisþegum að vera stökkva, svo ræddum við um slys í fallhlífarstökki, og komust að því að þau væru nokkuð algeng.
Ferðin í flugvélinni á leiðinni upp var frekar erfið, ég var sífellt að reyna að hugsa um eitthvað annað, eitthvað fallegt. Svo var mér litið út um gluggan, þá kemur upp í hugann, “ég er að fara stökkva út úr flugvélinni eftir smá stund...shiturinn” við fórum í 13500 fet eða í 4 km hæð. þá var bara að koma sér út.
Ferðin niður gekk mjög hratt fyrir sig, vægast sagt geggjuð upplifun að vera svona í frjálsu falli. En við féllum um 10 þús fet í frjálsu falli.

Þetta er það rosalegasta sem maður hefur prófað.

Eftir stökkið keyrðum við til Tampa, skoðuðum okkur þar um og fórum á sædýrasafn, keyrðum svo til Sarasota þar sem við erum á Moteli núna, Í dag ætlum við að kíkja á ströndina hérna og halda svo suður með sjó, þar sem allt snýst um S-inn þrjú: Sun, Sea and S**.....

Hér koma svo nokkrar myndir, en þetta var allt tekið upp á DVD



Hvergi banginn




Einn tveir og hoppa.....





I can Fly...





Heiðar á hraðri niðurleið 200 km/klst




Tuesday, March 13, 2007

Orlando

Góðan dag.

Ferðin hefur gengið vel hingað til, í dag keyrðum við til Daytona Beach og chilluðm á ströndinni, svo keyrðum við niður með austurströndinni og skoðuðum Geimafarasafn sem áhugavert, eftir það fór við til Kissime sem er úthverfi í Orlando, erum á prýðis moteli.

Á morgun þá byrjum við á því að fá okkur staðgóðan morgunverð, það er nauðsynlegt, því að dagurinn á eflaust eftir að taka á taugarnar, en plannið er að fara í fallhlífarstökk, vera í frjálsu falli í eina mínútu á c.a 200 km hraða. Eftir það ætlum við að keyraa til Tampa






Monday, March 12, 2007

On the Road agine...

Ferðin norður gekk vel. þetta voru 250 mílur og tók um 5 tíma með kaffi og hádegishléi. umferðin gekk vel. Viltist ekkert rosalega mikið á leiðinni, Músinn er góður og kraftmikill. Ég er í þessum töluðu orðum að fara keyra á völlinn og sækja Heiðar, en hann lendir með Hundleiðum kl 21.

kveðja
Guðsteinn

God bless America

Jæja þá er ég komin til hennar Ameríku. Eftir að hafa svarað nokkrum laufléttum spurningum af innflytjendaeftirlitinu, eins og hvort ég higðist gera hryðuverkaárás? (niii kannski ekki í þessari ferð), eða hvort ég væri gamal nassisti) þá var mér hleypt inn í landið og birtist mér stórr mynd af stórglæpamanninum Búss og fyrir neðan myndina stóð “God bless America”. Á flugvellinum beið mín svartur. 2007 árgerð af Ford Mustang með blæju. Ég fékk GPS tæki með svo ég geti ratað eitthvað, konan í bílaleiguafgreiðslunni kenndi mér á það og setti sinn addressuna á hotelinu mínu. Þannig að ég keyrði bara á stað og fór bara eftir því sem tækið sagði mér, eftir svolitla stund þá var mér hætt að litast á blikkuna, ég var farin að fjarllægjast flugvöllin, en hotelið átti að vera við hann, og mér leist ekkert á hverfið, ég var komin í eitthvað getto, negrar út um allt og öll hús frekar illa á sig komin, þá komst ég af því að addressan var kolröng, anskotans kellingin hafði sett vitlausa addressu, en eftir að ég leiðrétti þettta þá komst ég á hotelið, sem er reyndar ömurlegt, gluggin minn ser alveg við hraðbraut, og mikil hávaði sem veldur því að ég get ekki sofið, sem jú skýrir það að ég er að blogga núna... best að reyna sofa í hausin sinn.


Hér má sjá leiðina sem ég ek á eftir

Sunday, March 11, 2007

Hello America

Í þessum töluðu orðum þá fer ég að leggja af stað til Bandaríkjana. Í gær gerði ég ekki mikið, hékk á sunset bar og las bók, fylgdist með flugumferðinni, það er gaman að fylgjast með þegar stóru þottunar taka á loft, sumir átta sig ekki á vindinum sem kemur, ætla vera sniðugir, standa beint fyrir aftan og taka mynd, en fá svo hressilegan sandblástur og hlaupa æpandi út í sjó hehe, svo voru nokkrir sem að héltu sér í grindverkið, og voru svo lóðréttir þegar vindurinn var sem mestur.

Í gær var auglýst á barnum “Toppless girls drink for free” þetta þótti mér mjög sniðugt í fyrstu og hugsaði mér gott til glóðarinar.

En að sjálfsögðu voru fáar ungar og fallegar stúlkur sem tóku þessu tilboði, en fullt af gömlum krumpuðum kerlingaherfum slóu til. Það hefði hinsvegar verið fyndið að fara til þeirra og bjóðast til að borga alla drykki fyrir þær ef þær vinsamlegast klæddu sig aftur í.



Hér er youtube video frá sunset bar



Thursday, March 08, 2007

Saba

Þá er ég komin með köfunarréttindi, kláraði námskeiðið í gær og þreytti próf sem ég stóðst. Það er búið að vera geggjað að kafa hérna, mikið að sjá. Fyrst byrjum við á því að keyra í c.a 20 mín og svo förum við á bát að kóralrifi, það er yfirleitt kafað tvisvar í c.a 40 mínútur í senn.. og farið niður á c.a 20 metra dýpi. Ég hef farið á nokkra köfunarstaði og er lífríkið mjög mismunandi, það sem ég er búin að sjá er mikið af skjaldbökum, stórrar barracudur og svo mikið af litlum hákörlum, alskonar fiskar og furðuverur sem ég kann ekki að nefna svo eru sumir fiskarnir mjög litríkir og furðulegir í laginu, eins og í nemo teikinimyndinni. Ekki spillti fyrir að kennarinn minn var mjög hugguleg og skemmtileg ítölsk stúlka. Það er gott að vera komin með réttindi, get ég vonandi kafað í miðjarðarhafinu í sumar, og svo kannski í þingvallavatni.... já eða bara í sundlauginni í Borgarnesi.

Saba er skemmtileg eyja en frekar róleg. Þetta er í rauninni bara eitt stórt eldfjall, hér íbúatalan svipuð og í Borgarnesi, og samfélagið eflaust svipað að mörgu leyti. Aðal atvinnugreinin hérna er túrisminn en hér kemur fólk allsstaðar úr heiminum til þess að kafa eða að fara í fjallgöngur. Hér er bara einn vegur, og er hann í kringum eyjunna og kallast hann ”the road”

Ég er búin að kynnast mikið af fólki hérna allstaðar að. Það alltaf gaman kynna sig sem Íslending, og maður fær oft skemmtileg komment sérstaklega frá ameríkönum. Eins og t.d, yeee I heard the population in iceland is very low, only 5 millions or something???????

Í fyrradag þá spjallaði ég við kana í bílnum á leiðinni í köfun. Ég sagði honum að ég væri frá Íslandi og fræddi hann mikið um land og þjóð, hann virtist mjög áhugasamur.

Svo í gær hitti kappann á pöppnum, þá var hann með konunni sinni. Hann kynnti mig fyrir henni með eftirfarandi setningu: This is Goody he is from Greenland!!! Ég starði bara á hann hugsaði með mér að það borgaði sig ekki að leiðrétta hann. Hann ætti það ekki skilið, hann væri of heimskur. En mig langaði til að spurja hann hvort að ég liti út eins og einhver helvítis Grænlendingur...

Á morgun flýg ég til St martin í eldgamalli smárellu, flugbrautin hérna er mjög stutt og getur bara fáar tegundir af flugvéllum lent hérna. St martin er algjör stuðstaður, ef Saba er eins og Borgarnes þá er Saint martin eins og 101 miðbær. Ég ætla að reyna að hitta á gamlan skipsfélaga sem er að vinna á snekkju þarna, en hann var með okkur á leander í sumar. Ströndin á st martin er cool, hún er við enda á flugbraut, það er mjög vinsælt að vera þar og fylgjast með stórru boeing þotunum lenda, en það liggur við að maður geti snert þær. Svo þegar þær taka á loft, þá kemur mikil vindhviða og feykir öllum handklæðum og draslinu í loftið.

Svo á sunnudaginn flýg ég til fyriheitna landsins. keyri svo á mánudagsmorgunin til Orlando til að pikka upp drenginn.

hit counter